Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2026 23:15 Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir nokkur vel valin orð við hinn sextán ára Max Dowman eftir að strákurinn fékk beint rautt spjald. Getty/Lewis Storey Mörgum þótti knattspyrnustjórinn Mikel Arteta ganga aðeins of langt þegar hann lét kornungan leikmann Arsenal heyra það fyrir framan myndavélarnar.
Mikel Arteta var spurður út í rauða spjaldið sem hinn 16 ára gamli Max Dowman fékk í tapleiknum á móti Fleetwood Town. Strákurinn fékk stuttan reiðilestur frá stjóra sínum þegar hann gekk af velli. „Ég hef ekki séð viðbrögðin við viðbrögðum mínum, hvort sem þau eru jákvæð eða neikvæð. Það þarf að skilja samhengið, sambandið sem ég á við hann og það sem við ræddum áður en við fórum út,“ sagði Mikel Arteta á blaðamannafundi fyrir leikinn við Liverpool um helgina. "We are not in Disneyland..." Mikel Arteta shares his thoughts on Max Dowman's red card against Fleetwood Town 👀 https://t.co/8hlRd9bAcG— ESPN UK (@ESPNUK) October 30, 2026 „Ef þið sæjuð stundum viðbrögð móður minnar og föður við mér mynduð þið segja „þér líkar ekki þessi viðbrögð“ en fyrir mig voru þau bestu viðbrögð sem hugsast gat því þau gerðu mér kleift að verða sá sem ég er,“ sagði Arteta. „En þið viljið sjá bestu og fallegustu viðbrögðin. Þið viljið sjá viðbrögð liðsfélaga hans þegar þeir þurfa að spila tíu á móti ellefu,“ sagði Arteta. „Við hverju búist þið? Þetta er getustigið og þetta eru viðbrögðin. Hvort sem þau eru rétt eða röng, þá eru þetta viðbrögðin. Og þegar ég vinn ekki er ég f-g brjálaður, alveg rosalega. Þetta er umhverfið og raunveruleikinn,“ sagði Arteta. „Þetta er ekki Disneyland, við erum í ensku úrvalsdeildinni. Við hugsum mjög vel um hann en við gerum líka kröfur því hann þarf að vinna sér inn réttinn til að spila, annars hvað eiga hinir strákarnir að segja við mig?,“ sagði Arteta. "We are not in Disneyland!" Mikel Arteta speaking about the way people reacted to his reaction to Max Dowman's red card against Fleetwood Town 🔊 https://t.co/tpvC73DxWP— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) October 30, 2026 „Viðbrögð mín voru í hita leiksins og af pirringi, því ég þekki afleiðingarnar af þessu og sérstaklega fyrir Max. Þetta er eitthvað sem við ræddum rétt áður en við fórum út, því þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist, þetta gerðist líka fyrr í þessum mánuði með Englandi,“ sagði Arteta. „Þetta mun halda áfram að gerast miðað við hvernig hann spilar og hvernig hann dregur að sér athygli mótherja. Við verðum að vernda hann þar sem hann er 16 ára en einnig vera mjög hreinskilin við hann um hvers er ætlast til af honum gagnvart liðinu og félaginu,“ sagði Arteta. „Ég ræddi við hann í gær. Það eru engin vandamál. Ég hef gert þetta sjálfur. Þess vegna er ég svo verndandi gagnvart þessum hlutum og ungum leikmönnum, því við höfum öll gert þessi mistök,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira