Íslenski boltinn

Njarð­vík sagði upp samningi við Smit

Sindri Sverrisson skrifar
Guy Smit varð bikarmeistari með Vestra í fyrra en lék með Njarðvík í sumar.
Guy Smit varð bikarmeistari með Vestra í fyrra en lék með Njarðvík í sumar. Vísir/Anton Brink

Hollenski markvörðurinn Guy Smit getur hafið leit að nýju félagi eftir að Njarðvíkingar nýttu sér ákvæði til að segja upp samningi við hann.

Smit hefur spilað með sex liðum hér á landi eftir að hann kom fyrst til Leiknis árið 2020, þá 24 ára gamall, en áður var hann á mála hjá NEC og FC Eindhoven í heimalandinu.

Hann elti þjálfarann Davíð Smára Lamude til Njarðvíkur fyrir síðasta tímabil, eftir að þeir höfðu orðið bikarmeistarar með Vestra í fyrra, og lék alla leiki Njarðvíkur í sumar. Liðið komst í umspil um sæti í Bestu deildinni en tapaði þar gegn Þrótti í undanúrslitum.

Davíð Smári hætti sem þjálfari Njarðvíkur á dögunum og er nú orðaður við Gróttu og nú er Smit samningslaus.

Auk þess að spila með Njarðvík, Vestra og Leikni hefur Smit varið mark KR, ÍBV og Vals hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×