Íslenski boltinn

Heimir farinn frá Fylki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Heimir Guðjónsson var einum leik frá því að koma Fylki upp í Bestu deildina.
Heimir Guðjónsson var einum leik frá því að koma Fylki upp í Bestu deildina. Vísir/Anton

Heimir Guðjónsson er hættur sem þjálfari Fylkis í Lengjudeild karla í fótbolta en þetta gaf Árbæjarfélagið út í kvöld.

Í tilkynningunni kemur fram að knattspyrnudeild Fylkis og Heimir Guðjónsson hafi komist að samkomulagi um starfslok Heimis sem aðalþjálfara meistaraflokks karla frá og með deginum í dag.

Heimir þjálfaði Fylki í eitt tímabil en liðið endaði í 3. sæti í Lengjudeildinni í sumar og fór í úrslitaleik umspilsins þar sem liðið tapaði 1-0 á móti Þrótti sem fór því upp í Bestu deildina.

Það má lesa í frétt Fylkismanna að umræðan í kringum framtíð Heimis sé ástæðan fyrir samstarfsslitunum.

„Í fjölmiðlum og hlaðvörpum hefur nafn Heimis ítrekað verið tengt við önnur félög á undanförnum mánuðum. Eftir rót síðustu vikna er það mat stjórnar Knattspyrnudeildar Fylkis að hagsmunum Fylkis sé best þjónað með slitum á samstarfinu við Heimi Guðjónsson,“ segir í fréttinni á miðlum Fylkis. Leit að nýjum aðalþjálfara karlaliðs Fylkis er hafin.

Samkvæmt heimildum Íþróttadeildar Sýnar mun Heimir taka við liði Skagamanna af Lárusi Orra Sigurðssyni og er búist við því að hann verði formlega kynntur til leiks á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×