Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Valur Páll Eiríksson skrifar 26. október 2026 13:00 Aron Sigurðarson gerði tímabilið upp í lokaþætti Stúkunnar. Sýn Sport Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, bætti markamet Bestu deildarinnar í lokaumferð er KR vann 8-3 sigur á Breiðabliki. Hann gerði tímabilið upp í lokaþætti Stúkunnar.
Aron var búinn að jafna markametið er hann skoraði gegn Fram á dögunum en það mark var tekið af honum tæpri viku síðar eftir endurskoðun KSÍ á markinu. Hann missti því metið úr höndunum og þurfti að skora tvö mörk í síðustu tveimur leikjunum til að bæta það. Klippa: Aron ræðir markametið, umdeild ummæli og tryllta stuðningsmenn Víkings „Það er fáránlegt að það sé hægt að hringja bara og taka mark af manni. Ég á með þetta mark í tvo, þrjá daga og síðan var það allt í einu farið degi fyrir Keflavíkurleikinn. Þá kemur aftur upp einhver pressa. En ætli ég hafi ekki átt þetta inni. Að fá eitthvað smá á mig, einhverja svona aðeins meiri pressu. En það er bara gott að hafa slegið þetta,“ segir Aron um markametið sem hann sló með því að setja tvö mörk gegn Breiðabliki í lokaumferð deildarinnar. KR lenti í öðru sæti á eftir sterku Víkingsliði og bæting liðsins augljós. Fyrir ári síðan bjargaði KR sér frá falli með sigri á Vestra í lokaumferð deildarinnar. „Mér líður bara frábærlega með tímabilið. Þetta er bara andlegur styrkur hjá liðinu fyrst og fremst. Hann hefur farið bara í gegnum þakið. Við lentum í mótlæti. Í fyrra sá maður hversu oft og auðveldlega við brotnum. En þetta ár, ég veit ekki, hversu oft við lentum undir og komum alltaf til baka. Ég held að stærsti munurinn sé að við erum hérna á öðru ári með þessa vegferð og þennan fótbolta sem við spilum. En svona mesta sem ég hef tekið eftir er þetta andlega. Við erum miklu sterkari og þéttari hópur,“ segir Aron. En hvert er næsta skref? „Ætli næsta skref sé ekki bara augljóst eftir að hafa lent í öðru sæti. Á eftir liði sem hefur tröllriðið íslenskum fótbolta og það er ekkert grín að keppa við þá. Ég lenti nú í hakkavélinni af því ég er bara eins og ég er og ég bara tala eins og ég tala,“ segir Aron sem hefur verið umdeildur í sumar og skapað fyrirsagnir með digurbarkalegum yfirlýsingum. „En ég sé samt líkindin með þessum liðum, ég sé bara die hard stuðningshópa, þú veist, ég sé lið sem bara komið miklu lengra á sinni vegferð. Þeir byrjuðu fyrir sjö til átta árum. Við erum á öðru ári með Óskar. Ég held að næsta skrefið sé bara augljóst, að fara að berjast um þetta af alvöru. En það er hjalli þarna sem að þarf að komast yfir og þarf að vinna þetta lið,“ segir Aron en KR tókst ekki að vinna leik við Víking á tímabilinu. „Auðvitað vill maður reyna að vinna þetta og keppa að einhverju í alvöru. Við getum alveg horft til Víkings og tekið fullt af hlutum frá þeim. Þú veist, þetta „relentlessness“, þetta know-how, þessi hundur í þeim. Maður finnur það bara þegar maður er að keppa við Víking,“ segir Aron. Engin eftirsjá Eftir að hafa skorað þrennu gegn KA á Akureyri í ágúst var KR að fara að mæta Víkingi í næsta leik. Aron var þá einu marki frá því að jafna markametið en lenti í stíflu sem brast ekki fyrr en hann skoraði mörkin tvö um helgina. Hann fór á þeim tíma í viðtal við Stefán Árna Pálsson á Sýn Sport þar sem Aron sagðist ætla að skora 30 mörk í deildinni og vinna Íslandsmeistaratitilinn. Hann segist þó ekki sjá eftir því, þrátt fyrir að mörkin hafi ekki skilað sér í kjölfarið og ekki titilinn heldur. „Ég bara nenni ekki að sjá eftir neinu. Hefði ég gert eitthvað öðruvísi, þú veist, eftir 100 ár? Ég veit það ekki, maður. Þetta var bara skrifað í skýið. Ég skoraði þessa þrennu fyrir norðan. Næsti leikur var á móti Víkingi. Þeir komu heim til mín með myndavél. Svo var Sápan (Stefán Árni Pálsson, fréttamaður Sýnar) sem bara veiddi þetta upp úr mér,“ „Hann spurði bara: „Hefurðu trú á því að þið verðið Íslandsmeistarar?“ Hverju á ég að svara? Já, auðvitað. Ég vissi að það væru yfirgnæfandi líkur á að Víkingur yrði meistari.“ Víkingar vöktu hann með símtölum úr leyninúmerum Aron segist hafa með ummælum sínum gert tilraun til að ná Víkingum úr jafnvægi. Það hafi hreinlega ekki tekist. Rígurinn sé augljóslega mikill sem taki til að mynda á sig þá mynd að stuðningsmenn Víkings hafi hringt í hann um miðja nótt úr leyninúmerum. „Við vorum bara með eitthvað súperlið sem vinnur alla leiki. Það var ekkert búið að virka og ég hugsaði bara: Ég verð að gera eitthvað, fjandinn hafi það, til að reyna að komast inn í hausinn á þeim en svo lenti ég í hakkavélinni,“ „Það var Twitter og ég er að fara á ja.is því það er einhver að hringja í mig klukkan tólf á miðnætti úr óþekktu númeri. Það er það sem ég tengi við Víkingsstuðningsmennina sem er bara geðveikt og KR-stuðningsmennina. Þess vegna er þetta geðveikt dæmi. En þessi lið þurfa að geta keppt og við höfum ekki verið að keppa nóg við þá.“ Fleira kemur fram í viðtalinu við Aron sem má sjá í heild sinni í spilaranum.
KR Besta deild karla Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“