KR

KR

Fréttir af Knattspyrnufélagi Reykjavíkur, KR, frá Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lykil­maður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum

Makayla Soll, fyrirliði og lykilleikmaður kvennaliðs KR í fótbolta, úlnliðsbrotnaði á báðum höndum þegar hún lenti á vegg í leik gegn FHL í Fjarðabyggðarhöllinni um helgina. Þjálfari KR furðar sig á að spilað sé inni í höllinni og segir of stutt bil frá vellinum og í harða veggi hallarinnar.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vestur­bæinn

Landsliðskonan frábæra Sara Rún Hinriksdóttir hefur kvatt uppeldisfélag sitt Keflavík og er gengin í raðir KR. KR-ingar hafa einnig endurheimt Emmu Sóldísi Svan Hjördísardóttur og tryggt að Rebekka Rut Steingrímsdóttir haldi kyrru fyrir, og ætla sér greinilega stóra hluti í Bónus-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð.

Körfubolti
Fréttamynd

„Restin var bara ekki með“

„Ég er bara grútfúll, sérstaklega með frammistöðuna í fyrri hálfleik,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, eftir 3-1 tap liðsins gegn KR í Bestu-deild karla í kvöld.

Fótbolti