„Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Sindri Sverrisson skrifar 27. október 2026 20:32 Ída Marín Hermannsdóttir hefur átt stórbrotið ár með FH, íslenska landsliðinu og nú Hammarby. vísir/Anton „Hún verður ein af skærustu stjörnum okkar [Íslendinga],“ segir Guðni Eiríksson, þjálfari FH, um Ídu Marín Hermannsdóttur, besta leikmann Bestu deildarinnar á nýafstöðnu tímabili.
Þrátt fyrir að hafa verið seld frá FH til sænska félagsins Hammarby um miðjan ágúst og því ekki klárað tímabilið á Íslandi var Ída Marín valin best í Bestu deildinni. Hún var líkt og „af annarri plánetu“ í sumar, eins og Björn Sigurbjörnsson sérfræðingur Bestu markanna orðaði það, og skoraði 13 mörk í 15 leikjum en er nú farin að láta að sér kveða með einu allra besta liði Svíþjóðar sem og auðvitað með landsliðinu. „Hún er snillingur,“ segir Guðni sem var fenginn til að lýsa Ídu í lokaþætti Bestu markanna en brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Guðni hældi Ídu á hvert reipi „Hún er ólíkindatól og fer út um allt – í höfðinu og inni á vellinum. Það þarf svolítið að leyfa henni að vera Ída. Lykillinn að velgengni hennar hjá FH var að við leyfðum henni að vera hún sjálf. Það gerði að verkum að hún blómstraði hjá okkur alveg þar til að hún fór út í atvinnumennsku,“ segir Guðni. Kom sem varamaður frá Val en náði á þann stall sem hún verðskuldar Ída Marín kom til FH frá Val fyrir tímabilið 2024 en er uppalin hjá Fylki. Í ár hefur þessi 24 ára leikmaður sprungið út bæði með FH og landsliðinu. „Hún er ein af þessum leikmönnum sem koma til okkar sem varamaður í Val. Hafði átt erfitt uppdráttar og náði að snúa því við, er núna í frábæru liði í Svíþjóð, í A-landsliðinu, og búin að koma sér á þann stall sem hún á svo sannarlega heima á. Við í FH erum ótrúlega stolt af henni,“ segir Guðni sem segir að áhersla hafi verið lögð á að efla sjálfstraust Ídu og leyfa henni að njóta sín á sínum forsendum: „Betri vellíðan hennar skilar sér alltaf úti á vellinum. Með því að vinna með hana þannig að hún sé örugg með sjálfa sig, líði vel og fái traust til að gera það sem hún gerir svo vel, fái að gera mistök, gerir að verkum að sjálfstraust hennar jókst með hverjum leik. Hún naut sín svo vel og leikstíll FH hentar henni ofboðslega vel. Þess vegna var hún jafn öflug og raun bar vitni,“ segir Guðni sem er sannfærður um að Ída geti haldið áfram og náð mun lengra. Hennar hlutverk í landsliðinu muni bara stækka: „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður,“ segir Guðni en viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Besta deild kvenna FH Bestu mörkin Tengdar fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Ingibjörg Magnúsdóttir, leikmaður FH, átti frábært tímabil fyrir Fimleikafélagið og var verðskuldað valin efnilegasti leikmaður tímabilsins í Bestu deild kvenna. 26. október 2026 16:32 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Sjá meira
Ingibjörg valin sú efnilegasta Ingibjörg Magnúsdóttir, leikmaður FH, átti frábært tímabil fyrir Fimleikafélagið og var verðskuldað valin efnilegasti leikmaður tímabilsins í Bestu deild kvenna. 26. október 2026 16:32
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“