Erlent

Hafnar á­sökunum um kosningasvindl

Samúel Karl Ólason skrifar
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur haldið því fram að mikil kjörsókn meðal Palestínumanna í Ísrael og annarra ísraelskra araba sé samsæri og svindl hafi átt sér stað. Því hafnar formaður yfirkjörstjórnar landsins alfarið.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur haldið því fram að mikil kjörsókn meðal Palestínumanna í Ísrael og annarra ísraelskra araba sé samsæri og svindl hafi átt sér stað. Því hafnar formaður yfirkjörstjórnar landsins alfarið. AP/Ohad Zwigenberg

Formaður yfirkjörstjórnar Ísrael hafnar ásökunum um að umfangsmikið kosningasvindl hafi átt sér stað í kosningunum á þriðjudaginn. Hann segir ásakanirnar grunnlausar og að ekkert bendi til svindls eða þess að kerfisbundin frávik hafi átt sér stað.

Útlit er fyrir að þrátefli muni myndast aftur í ísraelskum stjórnmálum. Vilji Benjamín Netanjahú halda áfram sem forsætisráðherra myndi hann annaðhvort þurfa stuðning stjórnarandstöðuflokks eða flokka eða starfa með flokkum ísraelskra araba, sem er hæpið.

Stjórnarandstaðan er í sömu stöðu, þar sem hvorug fylking fékk nægilega mörg þingsæti til að mynda meirihluta. Fyrir kjörtímabilið sem er nú að ljúka þurftu Ísraelar að halda fimm kosningar á fjórum árum vegna langavarandi þráteflis.

Til að mynda ríkisstjórn þarf að minnsta kosti 61 þingmann.

Eins og staðan er núna, þegar langflest atkvæði hafa verið talin fá stjórnarflokkarnir saman 53 þingsæti af 120 og stjórnarandstaðan 48 sæti. Tveir flokkar ísraelskra araba fá saman 19 sæti.

Ísraelskir arabar eru rúmur fimmtungur ísraelsku þjóðarinnar. Þar er um að ræða marga Palestínumenn með ísraelskan ríkisborgararétt, sem er langstærsti hópurinn, en einnig Drúsa, Bedúína og aðra hópa.


Mikil kjörsókn sögð samsæri

Netanjahú og félagar hafa haldið því fram að umfangsmikil svik hafi átt sér stað og að utanaðkomandi aðilar hafi haft afskipti af kosningunum. Kjörstjórnin hefur beðið um að þessar ásakanir verði rannsakaðar.

Eins og fram kemur í grein AP-fréttaveitunnar hefur Netanjahú notað þá beiðni um rannsókn á ásökunum sínum til að halda því fram að þær séu sannar. Hann hefur kallað eftir því að enginn stjórnmálaflokkar starfi með flokkum araba, á grunni þessarar rannsóknar. Í beiðni kjörstjórnarinnar um rannsókn er ekkert talað um flokka ísraelskra araba.

Ásakanir Netanjahús og félaga beinast þó að yfirvöldum í Katar og snúast um einstaklega mikla kjörsókn ísraelskra araba, sem Netanjahú hefur gefið til kynna að gæti verið eitthvert samsæri.

Dean Livne, starfandi formaður yfirkjörstjórnar Ísrael, segir að ásakanir um svindl eigi ekki við rök að styðjast, eftir því sem best sé vitað. Hann segir að áðurnefnd beiðni um rannsókn snúi að leynilegum upplýsingum sem þurfi að skoða nánar en hafi ekki enn verið sannreyndar, samkvæmt frétt Times of Israel.

„Þingkosningarnar voru framkvæmdar með löglegum hætti.“

Sameinaði listinn vill Netanjahú burt

Stjórnarandstaðan hefur sakað forsætisráðherrann um að reyna að gera Grýlu úr aröbum.

Ráðamenn í Katar hafa gefið út yfirlýsingu þar sem þeir harðneita að hafa skipt sér með nokkrum hætti af kosningunum í Ísrael.

Þá hafa leiðtogar Sameinaða listans svokallaða, sem er stærri listi ísraelskra araba af tveimur, sakað forsætisráðherrann um að reyna að stela kosningunum. Þeir kalla eftir því að aðrir stjórnmálaleiðtogar hafni ásökunum Netanjahús og sömuleiðis hatursáróðri hans í garð arabískra kjósenda.

„Við höfum fengið nóg af því að afsaka okkur og verjast ógeðslegum lygum og grunnlausum ásökunum frá fjarhægriaðilum sem neita að samþykkja úrslit kosninganna.“

Sjá einnig: Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum

Þeir biðja stjórnarandstöðuna einnig um að vinna með þeim með því markmiði að koma Netanjahú frá völdum.

„Án okkar, getið þið ekki unnið. Með okkur, getum við byggt nýja framtíð.“

Sameinaði listinn styður stofnun fyrirhugaðs ríkis Palestínumanna og hafa margir ísraelskir stjórnmálaleiðtogar ekki viljað vinna með flokknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×