Íslenski boltinn

Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir

Valur Páll Eiríksson skrifar
Heimir Guðjónsson er nýr þjálfari ÍA. Hann lék með liðinu undir lok tíunda áratugarins.
Heimir Guðjónsson er nýr þjálfari ÍA. Hann lék með liðinu undir lok tíunda áratugarins. Vísir / Anton Brink

Heimir Guðjónsson er nýr þjálfari karlaliðs ÍA í fótbolta. Hann tekur við af Lárusi Orra Sigurðssyni sem skildi við Skagamenn er keppni í Bestu deild karla kláraðist um helgina.

Eggert Herbertsson, formaður knattspyrnudeildar ÍA, staðfesti þetta við Valtý Björn Valtýsson í þættinum Mín skoðun á X977.

Eggert greindi jafnframt frá því að Heimir hefði skrifað undir þriggja ára samning og að ÍA hefði greitt Fylki nokkrar milljónir króna til að losa Heimi frá Árbæjarfélaginu.

„Mig minnir að það standi í samningnum að við höldum þessari upphæð sem trúnaðarmáli. Við stöndum við gerða samninga,“ sagði Eggert sem vildi því ekki gefa upphæðina upp.

Hann staðfesti þó að kaupverðið hlypi á milljónum en „ekki mörgum“.

Lárus Orri stýrði Skagamönnum í fjórða sæti deildarinnar á síðustu leiktíð sem er besti árangur ÍA í deildinni í 19 ár. Það dugði honum þó ekki betur en svo að Skagamenn ákváðu að breyta til.

Heimir hefur verið orðaður við starfið síðustu daga og greindi Vísir frá því á laugardaginn síðasta að hann myndi taka við þegar Lárus Orri staðfesti að hann væri á förum eftir 4-4 jafntefli við Keflavík í lokaumferð deildarinnar.

Fylkir greindi þá frá því í yfirlýsingu í gærkvöld að liðið hefði sagt Heimi upp sem ýtti enn frekar undir þær sögusagnir að hann væri að taka við nýju starfi.

Það kom svo að því í dag að Eggert staðfesti ráðninguna í útvarpsviðtali í þættinum Mín skoðun.

Einn sá sigursælasti

Heimir þekkir til á Skaganum hafandi spilað á miðju ÍA sumrin 1998 og 1999. Hann fór þaðan til FH um aldamótin þar sem hann hefur verið stærstan part síðan, fyrst sem leikmaður og svo sem þjálfari.

Heimir stýrði FH til fimm Íslandsmeistaratitla sem þjálfari liðsins frá 2008 til 2017 og árið eftir gerði hann HB í Þórshöfn að Færeyjameisturum.

Hann tók við Val sumarið 2019 og var þjálfari liðsins til 2022. Valur varð Íslandsmeistari undir stjórn Heimis á Covid-tímabilinu 2020.

Hann stýrði FH í annað sinn frá 2022 til 2025 og tók síðasta haust við liði Fylkis í Lengjudeildinni. Heimi tókst ekki að stýra liðinu upp í Bestu deildina á hans eina ári með liðið og heldur nú úr Árbæ á Akranes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×