Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. október 2026 11:27 Róbert Ragnarsson skipaði annað sæti á lista Viðreisnar í kosningunum í maí. Vísir/Lýður Valberg Af þeim tugum sem sagt var upp störfum hjá Reykjavíkurborg í hagræðingaraðgerðum hafa um það bil fimm verið ráðnir aftur. Þetta segir Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar. „
Það er bara eitthvað sem við þurfum alltaf að viðurkenna að þegar við fórum í stórar breytingar þá áttuðum við okkur á því að kannski gengum við aðeins of langt,“ segir Róbert sem var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni. Róbert fer fyrir stýrihópi um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu og er markmið hans að minnka kerfið, sér í lagi þegar litið er til svokallaðs miðlægs kerfis. Meðal breytinga sem ráðist hefur verið í voru skipulagsbreytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs þar sem 86 starfsmönnum var sagt upp en af þeim höfðu 54 ekki fengið boð um áframhaldandi starf. „Auðvitað er erfiðast fyrir þau sem verða fyrir breytingum, sem eru kannski að fá nýtt hlutverk í vinnunni eða jafnvel að missa vinnuna, og svo þau sem eru að vinna með þeim,“ segir Róbert. „Þegar við erum í þessum opinbera rekstri þá munum við ekkert ná árangri nema að taka á launakostnaðinum, sem er langstærsti þátturinn í rekstrinum, og við erum að gera það í rauninni í samræmi við það sem við sögðumst ætla að gera.“ Núna er til skoðunar að útvista rekstri Húsdýra- og Fjölskyldugarðsins og fækkun borgarfulltrúa úr 23 í fimmtán. Þá vill Róbert taka fyrir stjórn fasteigna og hvernig þeim er sinnt næst. Hann talar fyrir því að ein stjórn verði yfir öllum fasteignunum sem beri ábyrgð á þeim og er Akureyrarbær tekinn til fyrirmyndar. „Ábyrgðin á viðhaldi fasteigna og rekstri fasteigna hefur verið óljós. Þannig að við viljum reka eignir borgarinnar eins og fasteignafélag og þetta er eitt stærsta fasteignafélag á landinu.“ Einnig hafi allir sviðsstjórar borgarinnar lagt fram tillögur um hagræðingu á sínum sviðum sem verði til afgreiðslu í fjárhagsáætlun í lok október. Tækifæri til að spara meira en milljarð Meðal þess sem var á verkefnalista meirihluta borgarstjórnarinnar var að fækka millistjórnendum og draga úr yfirbyggingu í borginni. Markmiðið var á lista yfir hluti sem meirihlutinn ætlaði að áorka á fyrstu hundrað dögum sínum í starfi og segir að markmiðinu hafi verið náð. „Til þess að einfalda þessa skilgreiningu þá eru það millistjórnendur og sérfræðingar sem eru að undirbúa mál og aðstoða lykilstjórnendur við að taka ákvarðanir eða styðja við stjórnendur á vettvangi við að sinna sínum hlutverkum,“ segir Róbert. Þetta voru markmið meirihlutans fyrstu hundrað daga þeirra.Skjáskot/Verkefnalisti.is Millistjórnendurnir hafi verið um 730 talsins í júní þegar borgarstjórnin tók við og segir Róbert að fyrir kosningar hafi hann haldið því fram að geta lækkað kostnaðinn um einn milljarð. Það samsvari um sjötíu störfum. „Við erum í sjálfu sér alveg að vera búin að ná því,“ segir Róbert. „En við munum ná meira fram, sko. Það eru meiri tækifæri þarna heldur en ég taldi fyrir kosningar, svona þegar maður fer að leggjast yfir það.“
Borgarstjórn Reykjavík Rekstur hins opinbera Viðreisn Bítið Bylgjan Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Sjá meira