Bítið

Fréttamynd

Segir milljarða­hönnun skóla í Voga­hverfi óraun­hæfa

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir nýjan meirihluta vilja einfalda uppbyggingu skóla og leikskóla og segir verða að læra af uppbyggingu Brákarborgar. Hönnun nýs skóla í Vogahverfi sem samþykkt var fyrir kosningar, verði til dæmis aldrei að veruleika. Framkvæmdin sé of dýr. Nota eigi teikningar sem til eru og nýta betur samstarfi við einkaaðila við hagkvæma uppbyggingu. 

Innlent
Fréttamynd

Fengju ekki að rústa verslunar­miðstöð ó­á­reittir

Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir óþolandi og óþarfi að erlendir ferðamenn séu staðnir að utanvegaakstri ár eftir ár. Hún segir þurfa að nýta heimildir til viðurlaga betur og það þurfi samstillt átak stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um að gæta þess að allir sem heimsæki landið, innlendir og erlendir, gangi vel um það.

Innlent
Fréttamynd

Vand­ræða­gangur í breskum stjórn­málum allt frá Brexit

Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor segir afsögn Starmer hafa legið fyrir um helgina og hún sé ekki óvænt. Starmer hafi barist við atlögu Andy Burnham en eftir niðurstöður í aukakosningum í síðustu viku hafi niðurstaðan verið ljós. Eiríkur var til viðtals um afsögnina í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Erlent
Fréttamynd

„Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir margt brýnna í skólakerfinu í dag en að setja reglur um símanotkun og að samtal nemenda og kennara um sitt umhverfi sé alltaf gáfulegra en miðstýrðar reglur sem geti skapað óþarfa vanda á milli þeirra. Samkvæmt reglugerð eigi að setja upp skápa en ekki liggi fyrir hver eigi að fylgjast með þeim eða hvort að barnið skili símanum þangað. 

Innlent
Fréttamynd

Grát­legt hversu miklum peningum fólk tapar í fjár­svikum

Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu Landsbankans, segir mikilvægt að fólk andi þrisvar og lesi vel skilaboð sem komi þegar fólk notar rafræn skilríki. Fjársvik hafa margfaldast síðustu ár og hún segir stöðuna sérstaklega slæma síðustu vikur. Brynja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Það vegast þarna á mjög erfið sjónar­mið“

Þriðja umræða fer fram á Alþingi í dag um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og meðlimur í allsherjar- og menntamálanefnd, segir brottfararstöðina eiga að tryggja mannúð í ömurlegum aðstæðum. Gert sé ráð fyrir því að fjölskyldur verði vistaðar á sérsvæði í úrræðinu en hann segist þó vona að vægari úrræði verði notuð áður. Gert sé ráð fyrir því í lögunum. 

Innlent
Fréttamynd

Blendnar til­finningar að fara á vinnu­markað á ný

Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi árið 1998 í vinnuslysi og fékk ágrædda handleggi árið 2021, reynir nú að koma sér aftur á vinnumarkað og segir það ekki hafa verið mögulegt án aðgerðarinnar.  Guðmundur ræddi stöðuna á handleggjunum og lífinu frá Strassborg, þar sem hann er búsettur, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Lífið
Fréttamynd

Væri frá­bært ef Land­spítalinn vildi reka leik­skóla

Hildur Björnsdóttir, nýr borgarstjóri, vill vera borgarstjóri allra Reykvíkinga og að allir fái að blómstra í borginni. Hún setur samgöngu- og leikskólamál á oddinn og segir nauðsynlegt að minnka kvaðir á húsnæðisuppbyggingaraðila. Nýr meirihluti stefni á meira frelsi þeirra. Rætt var við Hildi um verkefnalistann og markmið hennar í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir skort á aga og að hafa gefið markaðinum misvísandi skilaboð sem leiðir til hærri verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Léttist um á­tján kíló á ógnar­hraða með hjálp gervi­greindar

Þingmaðurinn Jón Pétur Zimsen þyngdist hressilega eftir að hafa tekið sæti á Alþingi og ákvað að taka á sínum málum þegar hann fór að verða móður og másandi við að ganga upp stiga. Hann fékk gervigreindina til að smíða æfingaprógram og léttist um átján kíló á þremur mánuðum.

Lífið
Fréttamynd

Mikil spenna í veðurkortunum

Mikill munur er á hitastigi norðan við landið og sunnan þess og er mikil spenna í veðurkortum vegna þessa, sérstaklega á norðanverðu landinu þar sem snjóað gæti til fjalla síðar í vikunni. Veðurfræðingur segir ekki víst enn hvort verði ofan á, kalda loftið eða hið heita og því sé mikil óvissa í kortunum. Hann hvetur bændur fyrir norðan til að fylgjast vel með veðurspám en slíkur hitabratti leysi yfirleitt alltaf eitthvað úr læðingi.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er búið að vera eins og ein­hver brandari“

Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari segist ekki hafa átt von á því að hreppa hlutverkið í Hollywood mynd um He-Man þegar hann tók þátt í prufu fyrir hlutverkið. Hann segist alla tíð hafa verið mikill aðdáandi ævintýraheimsins og sjálfur átt He-Man leikföng þegar hann var lítill. Hann er farinn að eiga marga aðdáendur vestanhafs, meðal annars suma sem fara yfir strikið í skilaboðasendingum.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Vilja að frítekjumörk ör­orku­líf­eyris verði endur­skoðuð

Viðskiptaráð telur að bæta ætti hvata innan örorkulífeyriskerfisns fyrir endurmat og endurhæfingu. Viðskiptaráð telur að endurskoða ætti frítekjumörk og samspil örorkutengdra bóta svo skýrari hvati sé til þátttöku á vinnumarkaði. Fólk eigi ekki að vera betur fjárhagslega sett á bótum samanborið við að vera á vinnumarkaði. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ívar Hall­dórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhanns­sonar

Útvarpsmaðurinn Ívar Halldórsson er týndur sonur tónlistarmannsins Jóhanns G. Jóhannssonar. Ívar segir mikla leynd hafa ríkt yfir faðerni hans um árabil, það hafi verið súrrealískt að sjá mann svo líkan sér í sjónvarpi en þeim feðgum hafi komið vel saman þegar þeir hafi hitt hvorn annan í fyrsta sinn.

Lífið
Fréttamynd

„Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“

Hildur Dís og Hjalti eru bæði með meltingarsjúkdóm sem getur valdið því að þau þurfa að fara á salernið með stuttum fyrirvara. Bæði greindust þau nokkuð ung en afleiðingar sjúkdómanna eru ólíkar. Hjalti er til dæmis bestur á einföldu mataræði en bæði segja þau streitu og álag verulegan áhrifavald. 

Innlent
Fréttamynd

Veður­fræðingur spáir fínasta sumri

Veðurfræðingur segir landsmenn eiga von á hlýrra veðri eftir tæpar tvær vikur. Hann sér hagstætt sumar í kortunum og fólk þurfi ekki að óttast sumar á borð við árið 2024 sem margir landsmenn gráta enn.

Innlent
Fréttamynd

Von­góður um að fundur með Apple skili árangri

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði í síðustu viku með fulltrúum Apple í Lundúnum og óskaði eftir því að íslenska verði hluti af iOs-stýrikerfi Apple. Logi fundaði í sömu viku með stjórnendum Spotify og óskaði eftir því að íslensk tónlist yrði kynnt betur á streymisveitunni.

Innlent
Fréttamynd

Launa­hækkun Höllu ill­skiljan­leg

Formaður Eflingar er gagnrýninn á launahækkun sem stjórn VR veitti formanni félagsins fyrir helgi. Það skjóti skökku við að góð laun formannsins hækki um tólf prósent þegar langtímakjarasamningar eru í mikilli hættu á að falla úr gildi.

Innlent
Fréttamynd

Hafa fundið nýtt jarðhita­svæði á Hellis­heiði

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir Orkuveituna hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði. Það eigi enn eftir að staðfesta með þriðju borholu en ef þær rannsóknir verði staðfestar verði það stórkostleg tíðindi fyrir þjóðina.

Innlent