Innlent

Eldur í lyftara í ál­verinu í Straumvík

Lovísa Arnardóttir skrifar
Vandasamt er að slökkva eld í álverinu.
Vandasamt er að slökkva eld í álverinu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var í nótt kallað út vegna bruna í lyftara í Straumsvík. Í tilkynningu á Facebook kemur fram að slökkvilið hafi farið í sams konar útkall fyrir viku síðan.

Samkvæmt tilkynningu fóru tveir dælubílar á vettvang en það tók um tvo tíma að klára verkefnið vegna þess hve snúið það var. Ekki má nota vatn inni í álverinu auk þess sem þar er mikill rafmagnsstraumur.

„Með góðri aðstoð vélamanna og starfsmanna álversins tókst að leysa verkefnið,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Eldur í álverinu í Straumsvík

Eldur kom upp í flutningstæki í kerskála í álverinu í Straumsvík. Hann kom upp á tólfta tímanum. Erfitt var að komast að tækinu svo að flytja þurfti það út til að slökkva eldinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×