Ákvörðun Jóns högg fyrir Viðreisn og ríkisstjórnina Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 16. október 2026 12:11 þingmálaskrá Valkyrjurnar, formenn ríkistrjórnaflokkana kynntu þingmálaskrá sína fyrir komandi haustþing í Ráðherrabústaðnum. Formaður Viðreisnar segir brotthvarf Jóns úr þingflokknum högg fyrir flokkinn og ríkisstjórnina. Hún telur stöðu sína sterka og óskar honum alls hins besta. „
Já, þetta er auðvitað högg fyrir okkur í Viðreisn og líka ríkisstjórnina sem heild því að Jón er einstakur maður og það hefur verið gott að vinna með honum og það er líka bara gaman að vera í kringum hann, hann er með skapandi hugsun þannig að þetta er högg og ég náttúrulega er bara leið yfir þessu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra um brotthvarf Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar. Aðspurð hvenær hún hafi orðið vör við óánægju Jóns segir hún að það hafi verið í síðasta mánuði. „Ég áttaði mig á að hann var að hugsa ýmislegt í september og þá ræddum við mjög ítarlega saman. Mér fannst gott að sjá að hann var sáttur meðal annars með „strategíuhópinn“ sem fær mikið frelsi til þess að fara yfir ákveðna hluti varðandi innra starfið, samskipti og svo framvegis og það voru áætlanir um að hann myndi skila núna í nóvember en það verða þá bara aðrir sem klára það verkefni.“ Hópurinn sem Þorgerður vísar til er vinnuhópur innan Viðreisnar sem hefur það verkefni að skoða innra starf flokksins, skerpa á áherslum og skoða samskiptamál. Jón leiddi vinnu þessa hóps og stóð Þorgerður í þeirri trú að það með væri hún að koma til móts við hans áhyggjur. „Ég hélt einmitt að það væri til þess fallið að koma til móts við það sem Jón hefur verið að segja en eins og ég segi, ég, er mjög leið að missa Jón. Mér þykir undurvænt um hann.“ Stendur ekki í orðaskiptum við Jón Jón hefur ýmist talað um að ástæða ákvörðunarinnar hafi verið lítil áhersla flokksins á mál sem eru honum hugleikin og persónuleg mál innan flokksins. Jón sagði í Kastljósi í gær að það skorti á forystu innan Viðreisnar. Hvað nákvæmlega er að baki þessari ákvörðun hans? Hvaða ástæðu gaf hann þér? „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón, ég bara virði hans ákvörðun. Það eru alls konar hlutir sem gerast innan flokks og þá leysum við þá innan flokks og reynum að vinna sem best úr þeim. Eftir stendur að þetta er þéttur hópur, samheldinn hópur í Viðreisn. Þetta er sterk ríkisstjórn og við ætlum bara einfaldlega að horfa áfram á verkefnið. Þar felst okkar mesta ábyrgð að halda áfram af fullum krafti í þágu samfélagsins alls en ég ætla ekki að standa í neinum orðaskiptum. Ég bara virði Jón og þykir undurvænt um hann.“ Jón vísaði meðal annars í veikindi innan þingflokksins og var veikindaleyfi Sigmars Guðmundssonar eitt af því sem þáttastjórnandinn spurði Jón út í. Aðspurð hvort Þorgerður Katrín hefði getað staðið öðruvísi að því máli segir hún: „Það að vera í forystu í stjórnmálaflokki er auðvitað ekki sjálfgefið og maður þarf að takast á við ýmsar áskoranir og ákvarðanir en það er eitt sem ég geri ekki. Ég ræði ekki um persónuleg mál einstaklinga innan flokksins á opinberum vettvangi, það geri ég ekki.“ Í gær var tilkynnt að Pawel tæki við þingflokksformennsku af Sigmari. Hefði það átt að gerast fyrr? „Eins og ég segi, ég vil ekki tjá mig frekar um það. Við erum með öflugan þingflokksformann núna eins og við höfðum í Sigmari og núna er það Pawel. Verkefnin halda áfram. Það er alveg ljóst að við munum áfram leggja mikla áherslu á grundvallarstefnumál Viðreisnar. Við erum að vinna í þeim, við erum að einfalda kerfið, við erum að minnka báknið, við erum að sameina ríkisstofnanir. Við erum að, við höfum verið að selja ríkisfyrirtæki án þess að það væru neinir skandalar.“ Ekkert sé gefið í pólitík Aðspurð hvort orð Jóns snúi ekki að henni sem formanni segir Þorgerður að það að vera í forystu í stjórnmálaflokki sé ekki sjálfgefið. „Ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa verið ítrekað kjörin á landsþingum Viðreisnar með yfir 90% stuðningi og mér skildist að það hafi verið einhver könnun um daginn þar sem 96% stuðningsfólks Viðreisnar styður mig í því sem ég er að gera.“ „Það er dýrmætt veganesti en það má aldrei ganga neinum hlutum gefnum í pólitík og maður á að hlusta, maður á að vera í sjálfsgagnrýni og ég nota þetta tækifæri til þess og aðalmálið er að halda áfram, halda áfram veginn en vera líka meðvitaður um það sem er verið að beina sjónum að og þetta, í þessu felst meðalábyrgð hjá okkur sem erum í stjórnmálum og forystu í stjórnmálum að axla ákvarðanir sem við tökum. Það er ekkert alltaf húrrahróp yfir öllum ákvörðunum sem við tökum.“ Aðspurð hvort hún finni fyrir minni stuðningi nú en áður telur hún að svo sé ekki en að leiðtogar í stjórnmálum eigi aldrei að taka hlutum sem gefnum. „Við eigum að vera auðmjúk fyrir því sem okkur er falið en við þurfum líka að sýna festu og hluti af því að vera leiðtogi er að taka ákvarðanir, eins og ég segi, er öllum alltaf skemmt yfir þeim? Nei. En þú verður að halda áfram og sýna ákveðna festu en um leið að hlusta á það sem sett er fram. Það er það sem ég er að gera og ætla mér að gera og mér finnst vænt um að sjá Viðreisn, hvað hún er sterk í dag og þau sjónarmið sem hún stendur fyrir.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Tengdar fréttir Pawel tekur við Sigmari sem þingflokksformaður Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis lýsti því yfir áður en hefðbundin dagskrá Alþingis hófst í dag að Viðreisn hefði sent þinginu bréf. Þar kom fram að Pawel Bartoszek væri orðinn þingflokksformaður Viðreisnar. 13. október 2026 14:27 Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Sjá meira
Pawel tekur við Sigmari sem þingflokksformaður Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis lýsti því yfir áður en hefðbundin dagskrá Alþingis hófst í dag að Viðreisn hefði sent þinginu bréf. Þar kom fram að Pawel Bartoszek væri orðinn þingflokksformaður Viðreisnar. 13. október 2026 14:27