„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Agnar Már Másson skrifar 8. október 2026 19:45 Þessa dagana MR-VÍ vikan staðið yfir. „Ofbeldi, ógnandi framkoma og skrílslæti verða ekki liðin undir neinum kringumstæðum,“ segir rektor. Vísir Ræðukeppni Menntaskólans í Reykjavík og Verslunarskóla Íslands hefur verið frestað fram til sunnudags eftir að knattspyrnuleikur milli skólanna fór úr böndunum í gærkvöldi. Í pósti til nemenda og forráðamanna segir hún atburðina vera með öllu óásættanlega og varpa skugga á gervallt skólasamfélagið. „
Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, í tölvupósti sem sendur var til nemenda og forráðamanna síðdegis í dag og Vísir hefur undir höndum. Greint var frá því í dagbók lögreglu í morgun að einn hefði fengið flösku í höfuðið í kappleik á milli nemenda MR og Versló. Mikil ölvun og ólæti hefðu verið á viðburðinum. Blysum hefði verið kastað sem hefðu lent á nærstöddum og einhverjir fengið kjaftshögg og skyrpt hefði verið á aðra. Sólveig ræddi við Vísi fyrr í dag en í tölvupóstinum segir hún að skólastjórnendum hafi borist upplýsingar frá aðilum sem voru á staðnum sem og frá lögreglu og það sem þar átti sér stað valdi þeim verulegum áhyggjum. Hún nefnir að keppni hafi farið fram í ýmsum greinum á milli skólanna tveggja í áratugi og verið hluti af heilbrigðum og góðlátlegum ríg milli þessara gamalgrónu skóla. „Atburðir gærkvöldsins voru hins vegar með öllu óásættanlegir. Hegðun sem þar átti sér stað fór langt út fyrir þau mörk sem hægt er að sætta sig við og átti ekkert skylt við þá virðingu, íþróttamennsku og ábyrgð sem við væntum af nemendum okkar,“ segir í yfirlýsingunni. „Það sem gerðist var til skammar og varpar skugga á skólasamfélagið í heild,“ bætir skólameistarinn við. „Ofbeldi, ógnandi framkoma og skrílslæti“ Hún segir að skólastjórnendur líti málið afar alvarlegum augum. „Ofbeldi, ógnandi framkoma og skrílslæti verða ekki liðin undir neinum kringumstæðum. Þeir sem tóku þátt í slíkri hegðun þurfa að axla ábyrgð á gjörðum sínum og gera sér grein fyrir þeim afleiðingum sem háttsemin hefur fyrir aðra nemendur, skólasamfélagið og orðspor skólanna.“ Í ljósi þessara atburða treysti skólinn sér ekki til að standa fyrir viðburðum þar sem nemendur skólanna takast á undir takmörkuðu eftirliti. Af þessum sökum hafi verið ákveðið að aflýsa keppninni sem fram átti að fara í Hljómskálagarðinum í dag, eins og greint var frá á Vísi fyrr í dag. Jafnframt muni ræðukeppnin sem fara átti fram í húsnæði Verzlunarskólans á morgun, föstudag, frestast til klukkan 17 á sunnudag. „Við væntum þess að allir nemendur sýni yfirvegun, virðingu og ábyrgð í framhaldinu svo unnt verði að endurbyggja það traust sem atburðir gærkvöldsins hafa grafið undan,“ skrifar hún. Viðburðir á vegum skólanna verði því hvorki á dagskrá í dag né á morgun. Bjórkvöld verði tilkynnt til lögreglu Þá víkur hún að svokölluðum „Bjórkvöldum“ og lýsir áhyggjum af aukinni drykkju ungmenna. „‚Bjórkvöld‘ eða aðrar slíkar samkomur eru skipulagðar af nemendahópum og oft [og] tíðum er staðsetning þeirra ekki auglýst fyrr en rétt áður en þau eru haldin. Við tilkynnum slíkar skemmtanir, þar sem áfengi er haft um hönd, undantekningarlaust til lögreglu.“ Þar sem nemendur MR séu börn til 18 ára aldurs megi ekkert þeirra kaupa áfengi fyrir tvítugt. Rektor tekur fram að foreldrar geti haft afgerandi og mikilvægt hlutverk í forvörnum. „Sýnum gott fordæmi og samstöðu,“ skrifar rektor að lokum og bætir við að skólastjóri Verzlunarskóla Íslands muni senda sambærilegan póst á aðstandendur sinna nemenda.
Framhaldsskólar Ofbeldi barna Reykjavík Lögreglumál Skóla- og menntamál Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira