Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Rakel Sveinsdóttir skrifar 9. október 2026 07:01 Þegar herpir að beggja megin borðsins upplifir starfsfólk oft tvöfaldar fjárhagsáhyggjur: Annars vegar þær sem snúa að þeim sjálfum og þeirra heimili en hins vegar vinnustaðnum sem flestu fólki finnst einmitt svo vænt um. Fréttamyndir/Vísir Það létti mörgum þegar samkomulag náðist í höfn á elleftu stundu í gær. Og þegar andrúmsloftið er þungt eða skýjað virðist fram undan er það góð tilfinning að finna létti, upplifa eitthvað jákvætt.
Því eðlilega hefur staðan í samfélaginu áhrif á okkur öll. Fyrirtæki eru að upplifa samdrátt, uppsagnir eru tíðar, áframhaldandi 8% stýrivextir og flestir gætu eflaust sagt að það sé eitthvað farið að herpa í skóinn. Fjárhagsáhyggjur þurfa nefnilega ekki alltaf að snúast um að við séum að fara á hausinn eða að allt sé að fara á versta veg. En þær geta svo sannarlega látið til sín taka í tíðaranda eins og nú er. Það er hins vegar önnur og fínlegri tilfinning sem sjaldan er rædd. En hún er togstreitan á milli samkenndar og eigin afkomu. Jú, sjáðu til… Flest fyrirtæki á Íslandi eru lítil og meðalstór. Þetta eru ekki bara einhverjir staðir sem við mætum á, heldur staðir sem okkur þykir oftast vænt um og bindumst tilfinningalegum böndum. Í vinnusálfræði er oft talað um sálfræðilega eignaraðild (psychological ownership) – sem nær einmitt að lýsa því svo vel hversu þýðingarmikill vinnustaðurinn og samstarfsfólkið okkar er: Við viljum svo innilega að allt gangi vel. Með öðrum orðum: Okkur þykir vænt um vinnustaðinn okkar og getum því haft áhyggjur af því þegar blikur eru á lofti. En þegar samdráttur verður, áætlanir ganga ekki eftir og stjórnendur sitja á tíðari fundum á bak við luktar dyr, finnum við spennu í loftinu sem samkvæmt rannsóknum dregur úr orku okkar. Á ensku er oft talað um þetta sem emotional contagion, eða tilfinningalegt smit. Í þessari stöðu - og í raun stöðunni sem nú er uppi - getur launafólk lent í ákveðinni klemmu. Svíður undan hækkandi reikningum og kostnaði heima fyrir á sama tíma og vinnustaðurinn okkar er augljóslega líka að glíma við sitt. Fjárhagsáhyggjur geta því haft margvíslegar birtingarmyndir en rannsóknir fræðimanna við Harvard og Princeton sýna að þegar hugurinn okkar festist í, má segja, marglaga pælingum (við höfum áhyggjur af okkur sjálfum en líka vinnustaðnum) skerðist vinnsluminnið, við verðum fljótari að þreytast, pirrast og missa einbeitingu. Góðu ráðin þessi vikulok snúast um hvernig við getum varið orkuna okkar nú þegar þrengir að beggja megin borðsins og nokkuð fyrirséð er að kaldur vetur er fram undan: 1. Einfaldaðu vinnudaginn Hafðu í huga að áhyggjur fylla í ákveðið rými í huganum þannig að vinnsluminnið okkar getur verið fljótt að fyllast. Reyndu að einfalda vinnuna, til dæmis með því að hugsa ekki um nokkur önnur verkefni á meðan þú ert á fundi eða að vinna í einu verkefni. Að skrifa hlutina niður léttir líka á taugakerfinu. 2. Fyrir hádegi Það er eðlilegt að dómgreind og sjálfsstjórn þverri undan álagi. Að nýta okkar ferskustu dagtíma til að leysa flókin mál, skrifa mikilvægan texta eða eiga krefjandi samtal við samstarfsmann eða viðskiptavin er því upplagt að setja á dagskrána frekar snemma dags. Eftir miðjan dag er líklegra að þreyta og vanstillt taugakerfi leiði til fljótfærni eða styttri þráðar. 3. Mundu hvar þín ábyrgð endar Það er mannlegt og eðlilegt að bera umhyggju fyrir vinnustaðnum sínum og samstarfsfólki. En ef þú situr ekki í brúnni berð þú ekki ábyrgð á heildarrekstrinum. Leyfðu þér að setja skýr mörk: Gerðu þitt besta á vinnutíma, en lokaðu tölvunni þegar vinnudegi lýkur og verndaðu hvíldina heima. Rekstrarvandi fyrirtækisins leysist hvorki á kvöldin né á koddanum þínum í nótt.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Á dögunum birtist allt í einu sláandi fyrirsögn á Vísi: Fyrst um að framkvæmdastjóri væri meðal handtekinna í róttækum aðgerðum lögreglu og síðan að sá hinn sami væri framkvæmdastjóri BL. 2. október 2026 07:02 Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Gular viðvaranir, lárétt rigning og morgnar sem líkjast helst miðnætti. Haustið á Íslandi bankar sjaldan kurteislega á dyrnar; það sparkar þeim upp. 25. september 2026 07:00 Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Þessi vikulok helgum við góðu ráðunum því andrúmslofti sem fylgir því þegar verkföll eru yfirvofandi og fólk jafnvel dregið í dilka. Hvað er átt við með því? 18. september 2026 07:02 Þegar allt er að fara fjandans til… Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið. 11. september 2026 07:02 Mest lesið Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Sjá meira
Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Á dögunum birtist allt í einu sláandi fyrirsögn á Vísi: Fyrst um að framkvæmdastjóri væri meðal handtekinna í róttækum aðgerðum lögreglu og síðan að sá hinn sami væri framkvæmdastjóri BL. 2. október 2026 07:02
Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Gular viðvaranir, lárétt rigning og morgnar sem líkjast helst miðnætti. Haustið á Íslandi bankar sjaldan kurteislega á dyrnar; það sparkar þeim upp. 25. september 2026 07:00
Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Þessi vikulok helgum við góðu ráðunum því andrúmslofti sem fylgir því þegar verkföll eru yfirvofandi og fólk jafnvel dregið í dilka. Hvað er átt við með því? 18. september 2026 07:02
Þegar allt er að fara fjandans til… Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið. 11. september 2026 07:02