Atvinnulíf

Gigg-hagkerfið: Iðnaðar­menn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það tekur 24 mínútur að meðaltali að fá tilboð í verk frá iðnaðarmanni á Giggó en Elsa Thorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð ehf., eiganda Giggó, segir ekki nógu mikið rætt um gigg-hagkerfið, sem þó er eflaust mun stærra og fjölbreyttari hluti af vinnumarkaði en mörgum grunar.
Það tekur 24 mínútur að meðaltali að fá tilboð í verk frá iðnaðarmanni á Giggó en Elsa Thorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð ehf., eiganda Giggó, segir ekki nógu mikið rætt um gigg-hagkerfið, sem þó er eflaust mun stærra og fjölbreyttari hluti af vinnumarkaði en mörgum grunar. Vísir/Anton Brink

„Í Evrópu tekur um 22% vinnuafls að sér giggverkefni og hlutfallið er enn hærra í Bandaríkjunum,“ segir Elsa Thorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð ehf., og bætir við:

„Á Íslandi tölum við hins vegar miklu minna um þetta, jafnvel neikvætt. Tengjum þetta við einhvers konar hark-vinnu.“

Staðreyndin sé þó þessi:

Yfir 23 þúsund notendur eru skráðir hjá Giggó. Fjölgun giggara er hröð og Elsa segir giggara alls konar og á öllum aldri.

„Það eru alls konar giggarar. Sumir nota giggvettvanginn sem sitt aðalstarf. Þar er áberandi yngra fólk sem vill sveigjanleika og þægindi – vill geta unnið hvar og hvenær sem hentar. Þarna kemur kynslóðabilið mjög sterkt inn. Hins vegar er fólk í fastri vinnu sem nýtir lausnina á kvöldin og um helgar í sínu fagi til að drýgja tekjurnar,“ segir Elsa og bætir við:

„Hópurinn er á öllum aldri. Um daginn talaði ég við ungan múrara sem nýtir Giggó til að koma sér á framfæri. Ég talaði líka við eldri sérfræðing sem sagði þetta frábæra leið til að afla sér verkefna á meðan fólk er í atvinnuleit.“

Í Atvinnulífinu í dag og á morgun er fjallað um giggara.

Eldgleypar og hundagöngur

Það eru ekki til nógu góðar tölur um gigg-hagkerfið á Íslandi til að bera það saman við Evrópu. Margir nýta sér ehf. sem rekstrarform og samkvæmt Hagstofunni er hlutfall einyrkja því aðeins 5-6% og þeir sem eru með fleiri en eitt starf eru 6-8%. Strax þarna er vísbending um að yfirsýnin yfir fjölda giggara sé ekki til staðar.

Til að átta okkur á fjölbreytileikanum má rýna í ólíka flokka giggara sem eru skráðir hjá Giggó:

Iðnaðarmenn: Sem eru stærsti einstaki hópurinn. Að meðaltali tekur 24 mínútur að fá tilboð í verk.

„Það er einmitt frábært að fylgjast með stjörnugjöfinni sem er í gangi í þessum hópi því iðnaðarmenn eru loksins komnir með vettvang fyrir sig, þar sem þeir geta bæði komið sér á framfæri og ekkert síður fyrir viðskiptavini að koma sínum umsögnum betur að,“ segir Elsa um fyrirkomulagið sem vinsælt er hjá þessum hópi .

Næst eru það sérfræðingar af alls kyns toga. Elsa segir þennan hóp geta boðið upp á nánast hvað sem er, allt frá markaðsráðgjöf og textagerð yfir í sérhæfðari verkefni.

„Þarna er hópur sem er jafnvel að drýgja tekjurnar sínar með aukaverkefnum í samræmi við sína sérþekkingu og reynslu.“

Næsti flokkur telur einkakennslu, þar sem tæplega eitt þúsund giggarar eru skráðir og fyrir hundagöngur eru yfir 1100 giggarar skráðir.

Loks eru það afþreying og viðburðir.

„Þar er hægt að finna til dæmis árstíðabundna kennara en líka mjög sérhæfða giggara eins og eldgleypa.“

Elsa segir fólk enn tengja giggara við einhvers konar hark. Hið rétta er að giggarar séu hratt vaxandi hópur, í Evrópu telji hann um 22% vinnuafls og í Bandaríkjunum sé hann enn stærri. Athygli vekur að yngra fólk horfir í meira mæli en það eldra, á gigg-hagkerfið sem val um lífstíl.Vísir/Anton Brink

Traust og þróun

Giggó er í eigu Alfreðs, sem nú þegar hefur haslað sér völl sem atvinnumiðill. Elsa segir Giggó í raun fyrirmynd frá Norðurlöndunum, þar sem vöxturinn er hraður.

„Á Norðurlöndunum, sérstaklega í Svíþjóð og Noregi, nýta um 10-12% vinnuafls stafræna giggvettvanga sambærilega við Giggó og við erum með okkar vöru og þjónustu að horfa til þeirra,“ útskýrir Elsa.

Mánaðarlega segir hún yfir 500 Íslendinga leysa úr einhverjum verkefnum í gegnum Giggó og þeim fjölgi hratt.

„Við erum beintengd við island.is þannig að hjá okkur eru tengingar við sveinspróf og meistararéttindi – viðskiptavinir geta því sannreynt lögvarin réttindi iðnaðarmanna í gegnum appið,“ segir Elsa.

Umsagnir skipta miklu máli.

„Fólk er orðið vant því að treysta umsögnum og einkunnum, rétt eins og þegar leigð er íbúð á Airbnb. Á vettvangi sem þessum færðu endurgjöf eftir hvert einasta unna verk. Það skapar nauðsynlegt traust og þeir sem eiga ekki heima þarna eða standa sig ekki detta fljótt út.“

Elsa segir vinnumarkaðinn vera að færast frá föstum stöðugildum í afmörkuð verkefni. Fyrirtæki séu líka í auknum mæli að átta sig á möguleikunum sem felast í því að ráða fólk tímabundið í verkefni eða störf.Vísir/Anton Brink

Að mati Elsu mun þróunin á Íslandi halda áfram eins og erlendis: Giggurum mun fjölga og það hratt.

„Vinnumarkaðurinn er að færast frá föstum stöðugildum yfir í afmörkuð verkefni. Yngri kynslóðir eru að velja öðruvísi en eldri kynslóðir og almennt er fleira fólk farið að horfa á sveigjanleikann sem mikilvægan lið í sínum lífsstíl,“ segir Elsa en bætir við:

„Ég tel líka að fyrirtæki séu smátt og smátt að átta sig betur á möguleikunum sem felast í því að ráða fólk tímabundið í verkefni eða störf.“

Miklu skipti að fara að horfa á gigg-hagkerfið sem hluta af vinnumarkaði. Annað sé ekki í takt við þá þróun sem er að sýna sig á Íslandi sem og erlendis, sumir vilji jafnvel meina að fram undan sé ákveðin réttindabylting sem muni meira taka mið af þessum hópi fólks.

Það er fullt af fólki sem vill vinna með þessum hætti og það er öllum til hagsbóta – giggurunum sjálfum, fyrirtækjunum og þeim sem kaupa þjónustuna. Tökum þetta bara allt upp á yfirborðið og gerum þetta vel.“


Tengdar fréttir

Sjálfstætt starfandi fjölgar: „Hvað gerist þegar forstjórinn veikist?“

„Við erum að þjónusta bæði lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög. En stundum leita einnig einyrkjar til Hoobla, til dæmis sjúkraþjálfarar og tannlæknar, sem þurfa aðstoð frá sérfræðingi vegna breytinga á reglugerðum eða gæðakröfum,“ segir Harpa Magnúsdóttir stofnandi og framkvæmdastjóri Hoobla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×