Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 24. september 2026 07:03 Geirlaug Jóhannsdóttir, ráðgjafi og stjórnendamarkþjálfi hjá Hagvangi, mælir með því að fólk í atvinnuleit noti ekki gervigreindina til að gera ferilskrár. Gott sé að miða við hámark tvær blaðsíður og mikilvægt sé að uppfæra kynningabréfin fyrir hvert og eitt starf sem sótt er um. Vísir/Anton Brink Að sögn Geirlaugar Jóhannsdóttur, ráðgjafa og stjórnendamarkþjálfa hjá Hagvangi, eru um átta þúsund manns í atvinnuleit í augnablikinu. Sá hópur sem telur til fólks sem hefur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði telur að jafnaði innan við tvö þúsund manns. Enda atvinnuleysi almennt lágt hlutfallslega á Íslandi miðað við víða erlendis.
Góðu ráðin eru líka mörg. „Við erum oft að leita að fólki sem er líklegt til að vilja skoða spennandi störf á landsbyggðinni. Skoðum í gagnagrunninum okkar: Hverjir hafa verið í Menntaskólanum á Ísafirði eða í Vestmannaeyjum og svo framvegis,“ segir Geirlaug og bætir við: „Ef ég mætti óska eftir fyrirsögn á þetta viðtal væri hún: Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni.“ Í Atvinnulífinu í gær og í dag er fjallað um langtímaatvinnuleysi. Ekki allt ómögulegt Að öllu jöfnu er reglan sú að viðmælendur geta ekki óskað eftir fyrirsögn. Að gefnu tilefni má hins vegar benda sérstaklega á tækifærin sem oft finnast í störfum úti á landi. „Fréttir fjölmiðla draga oft úr fólki sem er atvinnulaust enda eru þær meira og minna frekar neikvæðar: Þar er talað um kólnun á vinnumarkaði, kannanir sem benda til að stór hluti fyrirtækja ætla ekki að ráða nýtt fólk til starfa á næstunni og fleira í þessum dúr,“ segir Geirlaug en bætir við: Við þann hóp sem er í atvinnuleit segi ég þó: Ekki einblína á þessar fréttir, heldur frekar þau tækifæri sem nú leynast á vinnumarkaði. Hvaða atvinnugreinar eru til dæmis að fjárfesta eða í mikilli uppbyggingu?“ Geirlaug nefnir fjöldann allan af dæmum. „Það er gríðarleg uppbygging í orkugeiranum og mikið um ráðningar í gagnaverin. Til viðbótar má líka benda á störf sem tengjast innviðauppbyggingu og fleira.“ Þá segist Geirlaug oft benda fólki á landeldi. „Landeldi er í mjög miklum vexti á Íslandi og þar eru að verða til fjölmörg nýstörf.“ Það sama segir hún eiga við um ferðaþjónustuna. „Öll þessi nýju baðlón og ferðamannastaðir sem verið er að byggja upp.“ En takið eftir einu: Þetta eru mest allt störf úti á landi. „Já, þetta eru störf úti á landi og þar er staðan sú að oft er verið að auglýsa eftir fólki í mjög spennandi störf sem mun færri sækja um en gengur og gerist í sambærileg störf á höfuðborgarsvæðinu. Gæti landsbyggðin kannski opnað á ný tækifæri fyrir fólk sem er á milli starfa ?“ Geirlaug segir mörg tækifæri spennandi á landsbyggðinni og mælir með því að fólk í atvinnuleit skoði þann möguleika að sækja um þau störf. Þegar fjölmiðlaumræðan er neikvæð sé gott að horfa til atvinnugreina sem augljóslega séu í mikilli uppbyggingu.Vísir/Anton Brink Líttu þér nær… Að þessu sögðu segist Geirlaug oft benda fólki líka á að horfa á vinnustaði sem eru nálægt heimilinu. „Það eru ákveðin lífsgæði í því fólgin að vinna nálægt heimilinu. Að geta labbað í vinnuna eða að ferðir til og frá vinnu taki stuttan tíma. Oft er það því þannig að ég bendi fólki á að skoða nærumhverfið sitt.“ En við þurfum líka að líta í eigin barm. Það er of oft sem við sjáum kynningarbréf sem eru ekki uppfærð og eins mælum við með því að fólk noti ekki gervigreindina til að gera flotta ferilskrá. Of mikið er nú af ferilskrám sem eru einsleitar því gervigreindin útbýr þær þannig.“ Geirlaug mælir með því að fólk leiti sér aðstoðar við að útbúa bæði ferilskrána og kynningarbréfið, fái í það minnsta yfirlestur „Kynningarbréf þarf að vera útbúið þannig að það sé útfært fyrir hvert og eitt starf sem sótt er um. Það er bagalegt að sjá umsóknir berast þar sem kynningarbréfið er stílað á annað fyrirtæki,“ segir Geirlaug sem dæmi um það sem fólk þarf að passa vel upp á. „Ferilskráin þarf líka að vera mjög vel útfærð og upplýsandi og á vef Vinnumálastofnunar, millistarfa.is eru til dæmis sniðmát sem er hægtað styðjast við.“ Lykilatriðið er þó þetta: Ferilskráin ætti að hámarki að vera tvær blaðsíður! Við höfum fengið ferilskrá sem telur allt að 14 blaðsíður og það verður bara að segjast að það eru litlar líkur á að ferilskrár sem telja svo margar blaðsíður verði vel lesnar. Tvær blaðsíður eru viðmiðin fyrir góða ferilskrá.“ Nýjasta starfið þarf að vera efst og þegar langur tími líður í atvinnuleysi er þó hægt að uppfæra ferilskrána með nýjum upplýsingum. „Endilega nýttu þennan tíma til að ná þér í viðbótarþekkingu og bættu því við á ferilskrána. Eða taktu þátt í félagsstarfi eða sjálfboðastarfi. Atvinnuleysi í langan tíma getur verið niðurbrjótandi tími, fullt af höfnun og bið eftir svörum. En þetta er líka tími sem kemur ekki aftur og á þessum tíma er mikilvægt að minna sig á að synjanir eru ekki persónulegar.“ Geirlaug segir fólk oft hafa áhyggjur af kennitölunni sinni, jafnvel bara rétt rúmlega fertugt. Það sé óþarfi. Oft segi hún söguna af starfsmanninum sem var ráðinn áttræður og fílefldist á þeim fimm árum sem hann starfaði hjá Bauhaus og reyndist vinsælasti starfsmaðurinn.Vísir/Anton Brink Kennitalan er ekki vandamál Geirlaug segir að með því að sýna virkni á tímum langtímaatvinnuleysis horfi vinnuveitendur oft öðruvísi á málin. „Virkni eins og að sækja námskeið og fleira er vísbending um hvernig viðkomandi umsækjandi er. Rétt eins og kynningarbréf sem er ekki uppfært á rétt nafn er líka vísbending um ákveðna ónákvæmni.“ Þá segir Geirlaug fólk ekki eiga að vera feimið við að stíga hreinskilið fram. „Það geta verið alls konar ástæður fyrir því að fólk er atvinnulaust í langan tíma. Þú lendir í uppsögn, eitthvað áfall ríður yfir í fjölskyldunni, slys, veikindi eða annað sem tekur tíma þinn. Ekki vera feimin við að setja þetta sem stutta skýringu í kynningarbréfið. Enginn þarf að útlista einhverja sjúkraskrá þar en það er ekkert að því að gefa stutta skýringu á því hvers vegna þú hefur verið utan vinnumarkaðar í smá tíma en ert nú tilbúinn til starfa á ný.“ Geirlaug hvetur fólk til að skrá sig á ráðningarstofur og minna á sig þar reglulega með því að senda til dæmis tölvupóst og jafnvel upplýsingar um námskeið sem fólk hefur sótt sér síðan síðast, að skoða vel allar vefsíður þar sem yfirlit er yfir störf. Þar gleymi fólk oft sérstökum vefsíðum eins og starfatorg.is og Tvinna sem er vefur fyrir tæknistörf eða störf á vegum sveitarfélaga sem eru oft stærstu vinnuveitendurnir. „Síðan endilega að nýta tengslanetið sitt. Láta vita af sér og segja fólki að þú sért í atvinnuleit. Fólk veit ekki endilega af því að þú hafir verið atvinnulaus í meira en ár.“ Að nýta samfélagsmiðlana er gott mál. Þó á réttan hátt. „Á LinkedIn er hægt að merkja prófílinn sinn með merkingunni „Open to work“ og þar þarf lítið til að sýna virkni. Í stað þess að vera alltaf að láta vita að þú sért enn að leita að starfi er hægt að gera prófílinn sýnilegri með því til dæmis að segja frá viðburðum eða námskeiðum sem þú hefur sótt og vekja athygli á þér þannig.“ Geirlaug segir fólk þurfa að vera vakandi fyrir stafrænum sporum og þeirri ásýnd sem þau birta, til dæmis á samfélagsmiðlum. „Það er ekki sama hvernig myndir þú ert að birta eða hvers konar ummæli þú ert að skrifa. Því þetta getur verið skoðað og segir sína sögu um þig,“ segir Geirlaug og nefnir sérstaklega að fullt af djammmyndum sé til dæmis ekki málið, nema kannski ef þú stefnir á veitingageirann. „Að nýta þennan tíma til að breikka sjóndeildarhringinn og efla sig er líka uppbyggjandi. Þetta er tímabil sem nýtist vel í sjálfskoðun og það til dæmis að fara til markþjálfa getur verið góð leið til að skoða hvað veitir manni í raun ánægju; er það að þjónusta aðra, vera úti eða í skrifstofuumhverfivera í kyrrsetu eða meira á hreyfingu og svo framvegis,“ segir Geirlaug og bendir á að oft komi í ljós að það er ekkert endilega sambærilegt starf og áður sem heillar mest. Þá segir Geirlaug fólk gera of mikið úr aldursfordómum. „Margir á fertugs- og fimmtugsaldri hafa óþarfa áhyggjur af kennitölunni sinni, oftast vegna athugasemda frá vinum eða kunningjum. Reynsla ráðningafólks sýnir að fólk er ráðið á öllum aldri. Vinsælasti starfsmaður Bauhaus var til dæmis ráðinn þegar hann var nálægt áttræðu, starfaði þar í um fimm ár, viðskiptavinir vildu helst hitta á hann og hann efldist og varð hraustari.“ Geirlaug hvetur atvinnulaust fólk líka til að horfa líka á hlutastörf eða tímabundin verkefni. „Þegar vel gengur er það oft leiðin inn í stærri störf. Því það að vera kominn með fótinn inn fyrir þröskuldinn getur líka undið upp á sig síðar.“ Stundum geti atvinnuleysi líka gefið tækifæri sem annars gæfust ekki. Það er raunverulega það forskot sem maður hefur þegar maður er á milli starfa: maður getur byrjað bara strax. Það geta ekki þeir sem þurfa kannski að vinna þriggja mánaða uppsagnarfrest.“
Vinnumarkaður Starfsframi Tengdar fréttir Kaflaskil: „Allt í einu er ekkert í dagatalinu“ „Já þetta kallar alveg á ákveðið hugrekki,“ svarar Gunnur Líf Gunnarsdóttir og bætir við: „Ég þurfti alveg að hafa fyrir því að setja egóið til hliðar.“ 24. nóvember 2025 07:03 Aldur og atvinnufærni: „Ég þekki ekkert þennan ENTER gaur“ „Ég hef unnið í þessum starfsþróunarmálum í áratugi, oft með ungu fólki sem er að stofna fyrirtæki og hefja rekstur. 5. júlí 2023 07:01 Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi „Gigghagkerfið er að vaxa hægar á Íslandi en á Norðurlöndunum og í Evrópu, sem að mínu mati skýrist meðal annars af því að hér er þríhliða vinnumarkaðsmódelið enn svo sterkt,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi og eigandi Dokkunnar. 17. september 2026 07:03 Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu „Í Evrópu tekur um 22% vinnuafls að sér giggverkefni og hlutfallið er enn hærra í Bandaríkjunum,“ segir Elsa Thorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð ehf., og bætir við: 16. september 2026 07:01 Mest lesið Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Viðskipti innlent Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Viðskipti innlent Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Viðskipti innlent Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Viðskipti innlent Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Viðskipti innlent Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Viðskipti innlent Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Atvinnulíf Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira
Kaflaskil: „Allt í einu er ekkert í dagatalinu“ „Já þetta kallar alveg á ákveðið hugrekki,“ svarar Gunnur Líf Gunnarsdóttir og bætir við: „Ég þurfti alveg að hafa fyrir því að setja egóið til hliðar.“ 24. nóvember 2025 07:03
Aldur og atvinnufærni: „Ég þekki ekkert þennan ENTER gaur“ „Ég hef unnið í þessum starfsþróunarmálum í áratugi, oft með ungu fólki sem er að stofna fyrirtæki og hefja rekstur. 5. júlí 2023 07:01
Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi „Gigghagkerfið er að vaxa hægar á Íslandi en á Norðurlöndunum og í Evrópu, sem að mínu mati skýrist meðal annars af því að hér er þríhliða vinnumarkaðsmódelið enn svo sterkt,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi og eigandi Dokkunnar. 17. september 2026 07:03
Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu „Í Evrópu tekur um 22% vinnuafls að sér giggverkefni og hlutfallið er enn hærra í Bandaríkjunum,“ segir Elsa Thorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri hjá Alfreð ehf., og bætir við: 16. september 2026 07:01