Sport

Sinner á­fram frá og enn græðir Zverev

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sinner fagnar Wimbledon-titlinum fyrr á þessu ári. Þar vann hann Zverev í úrslitum. Sinner hefur ekki spilað síðan og Zverev unnið sína tvo fyrstu risatitla á meðan.
Sinner fagnar Wimbledon-titlinum fyrr á þessu ári. Þar vann hann Zverev í úrslitum. Sinner hefur ekki spilað síðan og Zverev unnið sína tvo fyrstu risatitla á meðan. Clive Brunskill/Getty Images

Tenniskappinn Jannik Sinner er enn frá vegna meiðsla sem hafa haldið honum frá keppni frá því hann vann Wimbledon-mótið í júlí. Hann hefur dregið sig úr Shanghai-meistaramótinu.

Sinner upplýsti um þetta á samfélagsmiðlum í dag. Hann hefur þegar dregið sig úr keppni á Opna kínverska mótinu sem stendur yfir eftir að hafa misst af US Open, Cincinnati Open og Opna kanadíska mótinu.

Tennisheimurinn er því áfram án eins besta spilara heims en Carlos Alcaraz var frá í fimm mánuði og missti af tveimur risamótum vegna úlnliðsmeiðsla fyrr á þessu ári.

Sá sem hefur grætt hvað mest á þessu er Þjóðverjinn Alxander Zverev. Hann vann Opna franska mótið, þar sem Alcaraz var fjarverandi og Sinner féll út keppni vegna veikinda.

Það var fyrsti risatitill Zverevs en hann fylgdi því eftir með öðrum risatitli á US Open, þar sem Sinner var frá og Alcaraz var enn að komast í sitt besta stand og tapaði fyrir Ben Shelton eftir maraþon leik.

Zverev vann svo Shelton í úrslitum.

Sinner er efstur á heimslistanum en gæti tapað toppsætinu fari hann ekki að komast aftur út á völl í bráð. Forðist Zverev að detta snemma úr leik á komandi mótum kann vel að vera að hann verði orðinn efstur á heimslistanum á næsta ár, ef ekki strax í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×