Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Valur Páll Eiríksson skrifar 3. október 2026 11:45 Heimir Hallgrímsson hefur þurft að svara allskyns misgáfulegum spurningum í yfirstandandi landsliðsglugga sem klárast eftir leik Írlands og Ísrael á morgun. Getty/Ben McShane Blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar, landsliðsþjálfara írska landsliðsins, var slitið snemma þegar ísraelskir blaðamenn undirbjuggu sig að spyrja Íslendinginn spjörunum úr. Írland mætir Ísrael öðru sinni á morgun.
Það gekk á ýmsu fyrir fyrri leik liðanna sem fram fór í Ungverjalandi síðasta sunnudag og á sama tíma fyrir viku síðan frestaðist blaðamannafundur Heimis, sem og æfing írska liðsins, um fjórar klukkustundir vegna fundarhalda um leikinn sem Írar íhuguðu að sniðganga. Heimir mætti því næst á blaðamannafund og fékk þar að mæta beittum ísraelskum blaðamönnum sem meðal annars spurðu hann hvers vegna Írar hefðu spilað landsleiki við Þýskalands nasismans á fjórða áratug síðustu aldar en ættu í vandræðum með að mæta Ísrael í dag. Ireland press conference in Serbia cut short after FAI shut down questions from Israeli media related to the flydubai hijack and then a racism allegation directed at an Irish player which has been strongly refuted by the FAI. Some angry scenes in the room and afterwards.— Daniel McDonnell (@McDonnellDan) October 3, 2026 Írland og Ísrael mætast í heimaleik Írlands á morgun en sá fer fram fyrir luktum dyrum í Serbíu. The Ireland press conference concludes in dramatic circumstances as an Israeli reporter tries to claim that an Irish player called an Israeli player a "monkey" last Sunday. That allegation is categorically denied by an FAI press officer.No UEFA delegate to be seen in room— Seán O'Connor (@SeanOCSport) October 3, 2026 Heimir hafði setið fundinn og svarað spurningum en þegar ísraelskir blaðamenn fóru að spyrja hann út í nýlegt flugrán milli Dubai og Tel Aviv og meint kynþáttaníð írsks leikmanns í garð leikmanns Ísraels ákvað írska knattspyrnusambandið að slíta fundinum. Samkvæmt írskum fjölmiðlamönnum var töluverð reiði meðal ísraelskra kollega þeirra vegna þeirrar ákvörðunar. Hvergi hafi verið að sjá fulltrúa frá UEFA til að hafa eftirlit með fundinum, en slíkt er fáheyrt. @irishfootballfantv After seeing this I really hope our lads go out and pump these again tomorrow. Adam Idah was the one racially abused but this guy tries to change the narrative. 🎥 X/amirzaky11 ♬ original sound - Irish Football Fan TV Fundurinn hafi verið færður í annað rými á vellinum þar sem írskir blaðamenn fengu að klára þær spurningar sem þeir áttu eftir að bera undir Heimi. Að Írar fái fleiri spurningar eða sérfund er í samræmi við reglulgerðir UEFA en ísraelski blaðamaðurinn sem bar spurningarnar upp brást ókvæða við. Hann ríghélt í hljóðnemann sem hann hafði fengið og neitaði að skila honum. Þá reyndi að hann troða sér inn á aukafundinn fyrir írsku blaðamennina en var vísað á dyr. Að endingu þurfti öryggisgæslu til að fylgja honum á brott.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Átök í Ísrael og Palestínu Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Fótbolti Slátturvél tók á loft í Svíþjóð Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti „Annars er mér bara fokking drullusama“ Körfubolti Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Körfubolti Fleiri fréttir Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Sjá meira