Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rakel Sveinsdóttir skrifar 26. september 2026 10:02 Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás,er gallharður Valsari og Liverpoolmaður. Í Reykjavíkurmaraþoninu segist hann hafa tekið einkunnarorð Valsmanna um að láta kappið bera fegurðina of bókstaflega. Næsta ár sé líklega skynsamlegra að taka kjörorð Liverpool til fyrirmyndar og ganga aldrei einsamall. Vísir/Anton Brink Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég tek daginn snemma á mánudögum og föstudögum og vakna upp úr 6 og er mættur á æfingu í Laugum klukkan 7. Aðra morgna er ég seinna á ferðinni en oftast farinn út upp úr klukkan 8.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Þá morgna sem ég er ekki farinn á æfingu áður en aðrir í fjölskyldunni vakna fer af stað þrautþjálfuð rútína þar sem hver fjölskyldumeðlimur gegnir sínu hlutverki. Mitt hlutverk er að elda hafragrautinn, eiginkonan sér um kaffið og börnin sjá um nestið sitt fyrir daginn.“ Ef þú mættir bara klæðast einum lit það sem eftir er ævinnar, hver yrði fyrir valinu? „Það væri að sjálfsögðu rauður, litur minna manna í Val og Liverpool. Í síðasta Reykjavíkurmaraþoni hljóp ég í góðum hópi samstarfsfólks í Styrkás samstæðunni til styrktar Gleym-mér-ei, styrktarfélagi sem konan mín kom að því að stofna ásamt fleirum. Ég tók einkunnarorð Valsmanna líklega of bókstaflega um að láta ekki kappið bera fegurðina ofurliði. Tíminn minn í hlaupinu bar þess merki að kappið var lítið og stefnan á næsta ári er að taka kjörorð Liverpool meira til fyrirmyndar og ganga aldrei einsamall.“ Í fyrra hóf Styrkás að innleiða sérstaka aðferðafræði til að halda utan um reksturinn og lykilverkefni en þessi aðferðarfræði heitir BOS360. Ásmundur segir aðferðafræðina nýtast vel til að ná markmiðum og árangurinn er gerður upp á þriggja mánaða fresti.Vísir/Anton Brink Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Nú er haust vertíð hjá dótturfélögum Styrkás, sem eru Skeljungur, Klettur, Stólpi, Hreinsitækni og HRT þjónusta. Þar ber hæst að dekkjavertíðin er að hefjast hjá Kletti og þá vinnur Stólpi hörðum höndum að uppsetningu vinnubúða við Sigölduvirkjun. Samstæðan hefur komið að slíkum stærri verkefnum þar sem Stólpi útvegar vinnubúðir fyrir verktaka, Skeljungur annast eldsneytisdreifingu, Klettur sér um að þjónusta vinnuvélar á verkstað og Hreinsitækni sér um úrganginn. Við erum þessa dagana einnig á fullu að vinna viðskiptaáætlun fyrir næsta ár og þótt ytra umhverfi sé um margt snúið þá sjáum við mörg sóknarfæri. Síðast en ekki síst er svo vaxandi þungi í undirbúningi fyrir skráningu Styrkás í kauphöll á næsta ári en við hlökkum til að taka skrefið inn í kauphöll þar sem við teljum að við getum orðið góð viðbót í flóruna og njótum ákveðinnar sérstöðu sem öflugt þjónustufyrirtæki við uppbyggingu atvinnulífs og innviða.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Við notum aðferðafræði BOS360 til að halda utan um reksturinn og lykilverkefnin sem við erum að vinna að hverju sinni. Við hófum að innleiða þessa aðferðafræði í fyrra sem hefur nýst vel til að ná markmiðum okkar til lengri og skemmri tíma en stjórnendahópurinn gerir upp árangurinn á þriggja mánaða fresti. Allt utanumhald fer fram í kerfi sem heitir Ninety. Outlook er svo auðvitað ómissandi við að halda utan um daginn.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Oftast í kringum klukkan 11 á kvöldin og reyni yfirleitt að lesa eitthvað fyrir svefninn. Er loksins að pæla mig í gegnum ævisögu Elon Musk sem er mjög áhugaverð þótt hann sé ekki endilega fyrirmynd á öllum sviðum!“
Kaffispjallið Tengdar fréttir „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, er snoozari þá morgna sem menntaskólalíf sonarins hefur þau áhrif að hún fer seint að sofa og spjallar frameftir. 19. september 2026 10:01 Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí. 12. september 2026 10:03 „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni. 27. júní 2026 10:01 Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og eigandi Kjalar Advisory hugleiðir alla morgna og segir það góða jarðtengingu inn í daginn. Svo huggulegur er hann að auðvelt er að líkja honum saman við sjálfan James Bond. Enda alltaf vel til fara. 20. júní 2026 10:02 Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára. 13. júní 2026 10:00 Mest lesið Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Atvinnulíf Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Viðskipti innlent Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Atvinnulíf Verulegur samdráttur hjá Isavia Viðskipti innlent 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Viðskipti innlent Mikill munur á afkomu almannatengla Viðskipti innlent Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira
„Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Guðríður Sigurðardóttir, ráðgjafi og einn eigenda Attentus, er snoozari þá morgna sem menntaskólalíf sonarins hefur þau áhrif að hún fer seint að sofa og spjallar frameftir. 19. september 2026 10:01
Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðar, verslunar- og menningarmiðstöðvar í Hafnarfirði, byrjar daginn á kaffibolla, fylgist með lífinu á höfninni og sinnir kisunni Múslí. 12. september 2026 10:03
„Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni. 27. júní 2026 10:01
Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Brynjólfur Magnússon lögfræðingur og eigandi Kjalar Advisory hugleiðir alla morgna og segir það góða jarðtengingu inn í daginn. Svo huggulegur er hann að auðvelt er að líkja honum saman við sjálfan James Bond. Enda alltaf vel til fara. 20. júní 2026 10:02
Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, reynir að hlaupa fyrir vinnu tvisvar til þrisvar í viku. Stærra afrek á morgnana felist þó í að undirbúa daginn með fjölskyldunni og koma öllum út úr húsi á réttum tíma. Enda aðal-vekjaraklukkan á heimilinu aðeins tveggja ára. 13. júní 2026 10:00