Bílaleigur geti verið í fararbroddi eða dragbítur á orkuskiptum Kjartan Kjartansson skrifar 22. september 2026 11:49 Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, segir ekki hægt að draga úr losun frá vegasamgöngum ef bílaleigur kaupa ekki inn rafbíla í stað bensín- og dísilbíla. Vísir/Anton Brink Loftslagsráðherra segir bílaleigur landsins annað hvort geta verið í fararbroddi eða dragbítur á orkuskiptum í samgöngum. Ef þær haldi áfram að bjóða aðallega jarðefnaeldsneytisbíla sé það ákvörðun um að íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna.
Losun frá vegasamgöngum jókst um 1,3 prósent á milli ára í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum sem Umhverfis- og orkustofnun kynnti í morgun. Vegasamgöngur eru stærsti staki flokkurinn í svonefndri samfélagslosun Íslands sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda að ná niður. Framreikningur stofnunarinnar bendir til þess að Ísland sé komið langt af stefnu á loftslagsskuldbindingar sínar til ársins 2030. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sagði stöðuna ekki í lagi á blaðamannafundi þar sem hann kynnti tölurnar í morgun. Bílaleigubílaflotinn væri stærsta áskorunin í að draga úr losun frá vegasamgöngum. Bílaleigur keyptu hátt í helming allra bíla sem væru fluttir til landsins og innkaup þeirra réðu því mestu um hvernig samsetning bílaflotans væri í gegnum framboð á notuðum bílum. „Það er engin leið að ná losun frá vegasamgöngum hratt niður nema ferðamenn fari í stórauknum mæli að nota rafmagnsbíla,“ sagði ráðherrann. Búið að gefa nóg af peningum Fullyrti Jóhann Páll að bílaleigurnar hefðu fengið tæplega tíu milljarða króna í skattastyrki og beinan og óbeinan ríkisstuðning í nafni loftslagsmála í tíð síðustu ríkisstjórnar. Fyrir það fé hefði hlutfall rafbíla í bílaleigubílaflotanum skriðið úr sjö til átta prósentum upp í fjórtán. Ferðamenn sem kæmu til landsins ættu að geta notað ferðamáta sem gengi fyrir hreinni íslenskri orku sem landið væri frægt fyrir. „Ef ekki, ef við ætlum að líta á það sem sjálfsagt mál að mikill meirihluti ferðamanna keyri um á bensín- og dísilbílum, og að það sé allt morandi í jarðefnaeldsneytisbílum á markaði fyrir notaða bíla, þá erum við bara að taka ákvörðun um að skattgreiðendur á Íslandi niðurgreiði losun ferðamanna með kaupum á losunarheimildum úr ríkissjóði eftir nokkur ár,“ sagði loftslagsráðherra. Bílaleigur hafa haldið því fram að engin eftirspurn sé hjá erlendum ferðamönnum eftir rafknúnum bílum.Vísir/Vilhelm Vísaði hann til þess að fyrirsjáanlega þarf Ísland að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða króna ef það stenst ekki skuldbindingar sínar gagnvart Evrópusambandinu. „Nú eru bílaleigufyrirtækin á Íslandi og að einhverju leyti ferðaþjónustugeirinn í þeirri stöðu að geta annað hvort verið í fararbroddi í orkuskiptum eða verið dragbítur á orkuskipti á Íslandi,“ sagði ráðherrann. Ríkisstjórnin vildi aðstoða en að fara þyrfti vel með fjármuni. „Það er búið að gefa alveg nógu mikið af peningum,“ sagði ráðherrann.
Bílaleigur Vistvænir bílar Bílar Ferðaþjónusta Loftslagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Viðskipti innlent Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Viðskipti innlent Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Sjá meira