Fær að setja þessar fasteignir á sölu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. september 2026 10:30 Þetta eru meðal húsnæða sem Daði Már mun hafa heimild til að selja. Samsett Nýtt fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra veitir honum heimild til að selja fjölda fasteigna, þar á meðal húsnæði lögreglunnar við Hverfisgötu, húsnæði Listaháskólans og Tollhúsið.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti nýtt fjárlagafrumvarp á blaðamannafundi í morgun og þar með var frumvarpið birt á síðu stjórnarráðsins. Nýjar heimildir Daða sem ráðherra eru þar reifaðar og verði frumvarpið samþykkt í þessari mynd hefur hann heimild til þess að setja á sölu eða ráðstafa með öðrum hætti fjölda bygginga í eigu ríkisins. Fjármálaráðherra hefur þegar haft heimild til að selja fjölda eigna en þær sem bætast við eru Laugarnesvegur 91, þar sem Listaháskóli Íslands er til húsa, Flugstöðin á Aðaldalsflugvelli, Hofsvallagata 53, sem Háskóli Íslands notar undir starfsemi sína undir heitinu Hagi, og Hafnarstræti 1 á Ísafirði, sem ber heitið Stjórnsýsluhúsið. Nýjar fasteignir á listanum eru einnig Dugguvogur 52, Skipholt 37, Laufásvegur 14 í Reykjavík og Vesturgata 62 á Akureyri. Sem fjármálaráðherra hafði Daði Már þegar heimild til að setja lögreglustöðina við Hverfisgötu á sölu en þar eru bæði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóri til húsa. Austurstræti 19 í Reykjavík og Vesturvör 2 gætu einnig farið á sölu en þar eru Héraðsdómur Reykjavíkur og Landsréttur til húsa. Þar undir fellur einnig flugstöðin á Þingeyri, Kópavogsbraut 5a-c í Kópavogi þar sem sambýli er til húsa og loks Skógarhlíð 6 sem fer undir starfsemi Björgunarmiðstöðvarinnar.
Fjárlagafrumvarp 2027 Húsnæðismál Reykjavík Kópavogur Ísafjarðarbær Akureyri Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Sjá meira