Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Lovísa Arnardóttir skrifar 4. september 2026 06:41 Leikskólinn er rekinn af Félagsstofnun stúdenta. Vísir/Einar Einn er enn með stöðu sakbornings í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á E. coli-hópsmiti á leikskólanum Mánagarði í október 2024.
Greint var frá því á vef RÚV í gær að málið hafi fyrst farið til ákærusviðs fyrir átta mánuðum. Þá voru fleiri með réttarstöðu sakbornings, þar með talið matráður og Félagsstofnun stúdenta, sem rekur leikskólann. Í frétt RÚV segir að Árni Bergur Sigurðsson, settur sviðstjóri ákærusviðs, vilji ekki gefa upp hver sé nú með stöðu sakbornings. Þá segir hann ekki liggja fyrir hvort að ákæra verði gefin út. Alls greindust 49 einstaklingar með shiga-toxin-myndandi E. coli-gerla, þar af 45 börn á Mánagarði, einn starfsmaður, eitt barn starfsmanns sem borðaði á leikskólanum þennan dag og tveir fjölskyldumeðlimir smitaðs barns. Börnin reyndust hafa borðað hakk og spagettí eða veganrétt í hádeginu 17. október. Við skoðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur kom í ljós að meðferð matvælanna hefði ekki verið ákjósanleg. Tólf börn voru lögð inn á legudeild Barnaspítala Hringsins, fimm börn inn á gjörgæslu og tvö þurftu skilunarmeðferð vegna nýrnabilunar. Eitt barn í það minnsta þurfti að vera í öndunarvél vegna veikinda. Einkenni barnanna voru allt frá vægum niðurgangi upp í „svæsinn blóðugan niðurgang“ og alvarleg veikindi með nýrnabilun, að því er segir í skýrslunni. Foreldrar stúlku sem lá þungt haldin á Barnaspítalanum fóru fram á að málið yrði rannsakað af lögreglunni. Lögmaður þeirra sagði í kröfu sem lögð var fram hjá lögreglu að gáleysi starfsmanna hefði verið svo stórkostlegt að það jaðraði við ásetning.
E. coli-sýking á Mánagarði Leikskólar Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Lögreglumál Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðismál Reykjavík Matvælaframleiðsla Tengdar fréttir Eitt barn enn á gjörgæslu og líðan þess stöðug Eitt barn er enn á gjörgæslu í öndunarvél vegna E.coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði. Valtýr Stefánsson Thors, yfirlæknir á barnaspítala Hringsins, segir líðan þess stöðuga. 5. nóvember 2024 18:56 Fjölskyldan hrædd og brotin vegna sýkingarinnar á Mánagarði Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur enn á spítala vegna E.coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E.coli-sýkingu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá. 3. nóvember 2024 18:13 Amma lýsir blóðugum niðurgangi og örvæntingu foreldra Amma fjögurra ára drengs sem hefur barist fyrir lífi sínu undanfarnar tvær vikur segir nauðsynlegt að fram fari ítarleg rannsókn á því hvað olli sýkingu á leikskólanum Mánagarði. Draga þurfi lærdóm af sýkingunni og tryggja að svona lagað gerist aldrei aftur. 1. nóvember 2024 16:14 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
Eitt barn enn á gjörgæslu og líðan þess stöðug Eitt barn er enn á gjörgæslu í öndunarvél vegna E.coli sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði. Valtýr Stefánsson Thors, yfirlæknir á barnaspítala Hringsins, segir líðan þess stöðuga. 5. nóvember 2024 18:56
Fjölskyldan hrædd og brotin vegna sýkingarinnar á Mánagarði Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur enn á spítala vegna E.coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E.coli-sýkingu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá. 3. nóvember 2024 18:13
Amma lýsir blóðugum niðurgangi og örvæntingu foreldra Amma fjögurra ára drengs sem hefur barist fyrir lífi sínu undanfarnar tvær vikur segir nauðsynlegt að fram fari ítarleg rannsókn á því hvað olli sýkingu á leikskólanum Mánagarði. Draga þurfi lærdóm af sýkingunni og tryggja að svona lagað gerist aldrei aftur. 1. nóvember 2024 16:14