Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Birgir Olgeirsson skrifar 31. ágúst 2026 11:18 Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. Vísir/Vilhelm Ríkisútvarpið réðist í hagræðingaraðgerðir fyrir helgi sem hafa áhrif á sem nemur tíu til fimmtán stöðugildum. Bæði verður gripið til uppsagna og ekki ráðið í störf sem losna.
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir Ríkisútvarpið standa frammi fyrir sömu áskorunum og aðrir fjölmiðlar. Há verðbólga hafi aukið kostnað á sama tíma og tekjur af þjónustu og auglýsingum hafi dregist saman hjá stofnuninni eins og öðrum í samfélaginu. „Við erum, eins og aðrir fjölmiðlar, að horfa á það umhverfi sem blasir við okkur á þessu og næsta ári og hagræðingu í rekstri. Við erum að glíma við háa verðbólgu sem hefur áhrif á reksturinn hjá okkur á þessu ári og þurfum að meta hvernig staðan verður á næsta ári. Tekjur af þjónustu og auglýsingum hafa fallið hjá okkur,“ segir Stefán. Rekstur allra deilda Ríkisútvarpsins sé nú til skoðunar. Hluti fækkunarinnar náist með því að ráða ekki í störf þeirra sem hætta vegna aldurs, en einnig verði gripið til beinna uppsagna. „Við erum að rýna reksturinn hjá öllum okkar deildum. Fólk sem er að hætta hérna vegna aldurs verður ekki ráðið í staðinn og svo verða beinar uppsagnir.“ Stefán áætlar að samanlögð áhrif aðgerðanna nemi tíu til fimmtán stöðugildum. Fækkun starfsfólks muni óhjákvæmilega hafa áhrif á starfsemina en Stefán segir Ríkisútvarpið áfram ætla að sinna lögbundnu hlutverki sínu. „Við reynum að aðlaga okkur að þessari stöðu. Eftir því sem við verðum færri hefur það að sjálfsögðu áhrif, en við munum eftir sem áður sinna okkar hlutverki eins vel og kostur er.“
Fjölmiðlar Ríkisútvarpið Vinnumarkaður Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira