Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. ágúst 2026 16:25 Þorsteinn Gunnarsson varaformaður samninganefndar Íslands í síðustu aðildarviðræðum er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Vísir „Alþjóðlega andrúmsloftið var allt annað þá. Ísland var nýkomið úr bankahruninu. Íslenskir fjármálamenn alræmdir. Það var afskaplega lítið traust úti í Evrópu til íslenskrar efnahagsstefnu og fjármála,“ segir Þorsteinn Gunnarsson varaformaður íslensku samninganefndarinnar í síðustu aðildarviðræðum.
Þorsteinn var gestur dagsins í Vísi að viðræðum en hann átti sæti í samninganefnd Íslands í síðustu viðræðum við Evrópusambandið á árunum 2009 til 2013. Samningsstaða Íslands styrkst til muna Hann segir allt annað ferli í vændum velji þjóðin að taka viðræðurnar upp á ný á laugardaginn kemur. Íslendingar hafi komið laskaðir til samninga síðar og samningsstaða Íslands hafi styrkst mikið. „Það fór heilmikið af starfinu í það að byggja upp traust,“ segir Þorsteinn en í þætti dagsins fór hann ítarlega yfir það hvernig samningaferli vindur fram. Allt frá því að samningshópur fundar í fyrsta sinn og þangað til að samningskafla er lokað á ríkjaráðstefnu í Brussel. Þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu árið 2009 voru samningsmarkmiðin sett fram í greinargerð með þingsályktuninni, samninganefnd var skipuð og tíu samningahópar tóku til starfa. Innan þeirra störfuðu um tvö hundruð manns úr ráðuneytum, hagsmunasamtökum, sveitarstjórnum og öðrum hlutum samfélagsins. Fyrsta verkefnið var að svara um tvö þúsund og fimm hundruð spurningum frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um íslensk lög, stjórnsýslu og fleira. Síðan tók við kerfisbundin samanburður á íslenska kerfinu og regluverki sambandsins, kafla fyrir kafla, alls þrjátíu og þrjá. Það þurfti að greina hvar kerfin samræmdust, hvar þau stönguðust á og hvort íslenskir hagsmunir fælust í því að breyta lögum að fyrirmynd evrópskra laga, sækjast eftir undanþágu eða reyna að semja um einhverja aðra lausn. Formlegu fundirnir eins og eftir handriti Þetta er sú hlið aðildarviðræðnanna sem fór sjaldnast fyrir sjónir Jóns og Gunnu. Umræðan hér heima snerist að mestu um stærstu pólitísku ágreiningsefnin landbúnaðinn, sjávarútveginn, fullveldið, gjaldmiðilinn og kosningarnar framundan. Innan samninganefndarinnar snerist vinnan hins vegar oftar um stór skjöl og langa rýnifundi. Sum mál var hægt að leysa innan samningahópanna, önnur þurftu að fara fyrir samninganefndina og enn önnur til ráðherra, ríkisstjórnar eða Alþingis. Þegar loks var komið að formlegum fundi í Brussel var yfirleitt búið að vinna málið svo ítarlega að þar gerðist fátt óvænt. Ágreiningurinn gat verið mikill, en sjálfur fundurinn var nánast leikinn eftir handriti, að sögn Þorsteins. Þorsteinn Gunnarsson er fræðimaður, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, sérfræðingur hjá Rannís og varaformaður samninganefndar Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið á árunum 2009 til 2013. Í ítarlegu samtali fóru hann og undirritaður yfir það sem raunverulega fór fram á meðan viðræðunum stóð, hvernig afstöður voru mótaðar, hvernig samskiptum var háttað við ráðherra og framkvæmdastjórnina og hvernig tók Brussel í kröfur Íslands um þessar margumtöluðu varanlegu undanþágur.
Vísir að viðræðum Hlaðvarp Vísis Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira