Innlent

Skólaliðum sagt upp hjá borginni

Eiður Þór Árnason skrifar
Kári Sigurðsson er formaður Sameykis.
Kári Sigurðsson er formaður Sameykis.

Hópi skólaliða hefur verið sagt upp störfum í grunnskólum Reykjavíkurborgar og þrifaverkefnum þeirra útvistað til einkafyrirtækja. Þá hefur starfshlutfall annarra verið skert. 

Þetta segir formaður stéttarfélags. Enn sé unnið að því að ná utan um umfang aðgerðanna og borgin hafi ekki svarað fyrirspurn stéttarfélagsins.

RÚV greindi fyrst frá. Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, fordæmir aðgerðirnar og segir þær í engu samræmi við yfirlýsingar borgarmeirihlutans um að grunnþjónustu verði hlíft í aðhaldsaðgerðum. 

Skólaliðar sinni ekki einungis þrifum og séu til staðar fyrir nemendur. Ljóst sé að starfsfólkið sem komi í staðinn verði ekki hluti af umhverfi barnanna.

„Þarna eru börn og ungmenni að missa mikilvæga aðila í skólunum frá sér.“

Hefur áhrif á nítján skóla

Í júlí samþykkti Innkaupa- og framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar að taka tilboðum Daga og Sólar í þrif á fjölda skóla.

„Þetta eru nítján skólar í heildina sem er verið að útvista þrifunum í,“ segir Kári. Þeirra á meðal eru Grandaskóli, Hagaskóli, Melaskóli, Brúarskóli, Hvassaleitisskóli, Vesturbæjarskóli og Klettaskóli. Kári bendir á að vinna við útvistunina hafi byrjað í tíð fyrri borgarstjórnar.

Hann bíður enn eftir því að fá staðfestar tölur um uppsagnir frá borginni og segir að fyrirspurn hafi staðið ósvöruð frá því í júlí.

Ekki í samræmi við orðræðu meirihlutans

Kári segir þessar aðgerðir í engum takti við það sem fulltrúar meirihlutans hafi talað um fyrir kosningar.

„Þarna ertu ekkert að minnka einhverja yfirbyggingu. Þarna ertu bara að ráðast beint að grunnþjónustunni, þú ert að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur hjá borginni. Þú ert að ráðast á nærþjónustuna þar sem þú ert með fólk sem er að vinna störf sem eru mjög mikilvæg og eru svo miklu meira heldur en bara störf við þrif í skólunum.“

Hann setur spurningamerki við það hvort þessum aðgerðum fylgi mikill fjárhagslegur sparnaður fyrir borgina. Skólaliðar séu ekki hálaunafólk og nýsamþykktir samningar um þrif í umræddum skólum hljóði upp á um 176 milljónir króna á ári.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×