Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 15:51 Lögreglan fann gögn um staðsetningu Péturs. Vísir/Vilhelm Lögreglumaður sem handtók Andra Má Mortensen Birgisson, sakborning í Reykholtsmálinu, segir að hann hafi verið yfirvegaður þegar hann var handtekinn vegna Reykholtsmálsins. Vitnaleiðslur aðalmeðferðarinnar héldu áfram í dag.
Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl 2024. Aðalmeðferðin hófst fyrir viku síðan og hafa allir ákærðu komið fyrir dómara og ýmist svarað spurningum eða neitað að tjá sig. Fyrir hádegi mætti lögreglumaður á Möltu fyrir dóm í gegnum fjarfundarbúnað. Hann sagðist hafa fengið tilkynningu um klukkan þrjú um nótt um að maður hefði verið vistaður á sjúkrahúsi eftir líkamsárás. Aðstandendur brotaþolans höfðu sagt lögreglumanninum að einhverjir hefðu farið inn í hús brotaþolans og haldið honum þar í þrjá daga. Nefnir hann Sigurð leigusala og dóttur hans. Sömuleiðis kom lögreglumaður sem rannsakaði muni sem fundust á vettvangi í Reykholti. Af þeim munum sem sendir voru í rannsókn á erfðaefni var hægt að greina erfðaefni brotaþola á gaffer-teipi. Erfðaefnið kom úr blóði á teipinu. Vandræði með tæknina í dómssal hafa sett sitt mark á aðalmeðferðina og sömuleiðis erfiðleikar með túlkaþjónustu. Því lítur allt út fyrir að aðalmeðferðinni muni ekki ljúka fyrr en á fimmtudag eða föstudag. Maltneskir læknar sem áttu að bera vitni í dag bera því vitni frekar seinna í vikunni. Tæpar átján milljónir millfærðar Lögreglan lét framkvæma fjármálagreiningu á reikningum brotaþola. Þar kemur í ljós að af reikningi brotaþola fóru 1.960.000 krónur á reikning í eigu Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar og 8,5 milljónir á reikning í eigu Andra Más. Þá voru 3,7 milljónir millifærðar á reikning í eigu Péturs Más Mortensen Birgissonar og 3,5 milljónir á Ingunni Rut Sigurðardóttur. Öll eru þau ákærð í málinu. Eftir á millifærðu þau sín á milli og millifærði Sigurður Gunnar sex hundruð þúsund inn á reikning Andra og hundrað þúsund krónur inn á reikning Ingunnar. Tók við fyrsta símtalinu Sjö lögreglumenn sem komu að einhverju leyti að rannsókn málsins komu fyrir dómara eftir hádegi. Fyrst var sá sem tók við málinu upprunalega og sagðist hann hafa fengið símtal á þriðjudagskvöldi í apríl 2024 um að brotaþola væri saknað. Það var þriðjudagurinn 23. apríl en sakborningum er gefið að sök að hafa frelsissvipt brotaþola frá 19. til 22. apríl 2024. Sá sem hafði samband við lögreglu var yfirmaður brotaþola. Bíllinn væri horfinn og lykillinn ekki í íbúð hans, sem væri óvenjulegt. „Á miðvikudagsmorguninn tek ég á móti símtali frá konu sem segist vera dóttir brotaþola. Hún lýsti gríðarlega miklum áverkum,“ segir lögreglumaðurinn. Rannsóknin hafi beðið þar til lögreglan fékk afhent gögn í málinu. Haft hafi verið samband við lögregluna á Suðurnesjum til að fá staðfest hvort að brotaþoli hefði farið úr landi. „Ég fékk skýrslu í hendurnar sem sýnir á hvaða bíl hann hefði komið og þar sem hann kveður tvo einstaklinga með handabandi við öryggisleitina.“ Sigurður farinn þegar lögreglan mætti Lögreglunni bárust undir lok vikunnar nánari upplýsingar svo hægt væri að ráðast í handtökur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók Andra og Ingunni á heimili þeirra í Kópavogi og lagði leið sína heim til Sigurðar í Reykholti. Hins vegar hafi hann ekki verið heima og þegar samband náðist við hann í gegnum síma reyndist Sigurður vera í Reykjavík. Hann samþykkti að ræða við lögregluna. Þegar lögreglumennirnir komu í íbúðina hafi Sigurður Gunnar verið farinn og sögðu nágrannarnir að hann hefði keyrt á brott skömmu áður. Þegar lögreglan hafði uppi á honum sagðist Sigurður vera á leið til lögmannsins síns. Hlaupbangsar, haglabyssa og hnúajárn Lögreglumaðurinn sem var viðstaddur handtöku Ingunnar og Andra segir að Andri hafi verið afar rólegur við handtökuna sjálfa. „Hann var frekar yfirvegaður og sýndi fullan skilning. Svo var gerð húsleit þegar lögfræðingur var kominn. Það er listi í skýrslunni en ég man eftir að það var afsöguð haglabyssa, hnúajárn, bíllyklar og bíll í bílageymslu, fíkniefni, kylfur,“ segir hann. Þetta á að hafa fundist vítt og dreift um íbúðina sjálfa, í svefnherbergjunum tveimur, alrýminu og á svölunum. Leitin hafi farið fram um leið og lögmaður mætti á vettvang. Lögreglumaðurinn sem vann að skýrslu um fíkniefnin sem eiga að hafa fundist í íbúðinni var spurður fárra spurninga. Hann tók fram að efnin sem fundust við leitina í íbúðinni væru amfetamín, kannabisblandað efni og maríjúana. Hluti þessa hafi verið í formi hlaupbita en hefur einn sakborningurinn játað að hafa átt hlaupbitana en ekki hin fíkniefnin. Kvöddust með handarbandi Ýmsar skýrslur eru bornar undir lögreglumennina, svo sem skýrsla um bíllykla sem fundust á Pétri við handtöku og hníf sem fannst í bíl sem lögreglan lagði hald á. Sömuleiðis var rýnt í ljósmyndaskýrslu tekna saman af lögreglumanni á Keflavíkurflugvelli. Þar sjást tvær myndir úr öryggismyndavélum af brotaþola og tveimur manneskjum sem talin eru vera Ingunn og Andri. Í texta við myndirnar segir að þau hafi kvatt hvort annað með handabandi. Lögreglumaðurinn, sem hefur látið af störfum í dag, segist hafa fylgt brotaþola í gegnum flugvöllinn þar sem hann gekk frá vopnaleitinni að brottfararhliðinu. Brotaþoli hafi ekki gert neitt á leiðinni, öllum veitingastöðunum hafi verið lokað og fáir á ferli. Hann hafi ekki rætt við neinn á leiðinni. Fann upptökur Andra Lögreglumaðurinn sem fór yfir símtæki sakborninganna var meðal þessara sjö lögreglumanna sem gáfu skýrslu. Hann var sá sem fann upptökuforritið í síma Andra en forritið hafði tekið upp öll símtölin hans og voru þau spiluð fyrir dómara við byrjun aðalmeðferðarinnar. Í þeim síma fundust einnig Signal-skilaboð til „Níels besta“ þar sem talað var um að koma einhverjum fyrir í baðkari, hóta með barnaklámi eða láta líta út fyrir að hann hafi tekið eigið líf. Þegar Níels Pálmar, einn ákærðra, kom fyrir dómara í síðustu viku þvertók hann fyrir að hafa notað Signal yfirhöfuð. Lögreglumaðurinn sagði sömuleiðis að hann hefði reynt að komast yfir staðsetningar símtækja sakborninga en einungis komist yfir staðsetningu síma Péturs einu sinni, sem þá var í Reykholti.
Fjárkúgun í Reykholti Dómsmál Bláskógabyggð Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira