Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. ágúst 2026 12:01 Magni R. Sigurðsson forstöðumaður CERT-IS segir sveitina fylgjast grannt með stöðunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Vísir/Vilhelm Netöryggissveitin CERT-IS fylgist grannt með notkun gerviaðganga á samfélagsmiðlum nú þegar styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB. Tilgangur þeirra er að ýta undir upplýsingaóreiðu að sögn forstöðumanns sem hvetur almenning til að vera á varðbergi.
Nú eru aðeins fimm dagar í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið en það sést glögglega á samfélagsmiðlum líkt og Facebook þar sem mikil umræða fer nú fram um málið. Þar má sjá töluverðan fjölda gerviaðganga sem líta út líkt og þar sé raunverulegt fólk á ferðinni en aðgangarnir eru nýttir til að rita athugasemdir í áróðursskyni undir færslur sem tengjast þjóðaratkvæðagreiðslunni. Magni R. Sigurðsson forstöðumaður netöryggssveitarinnar CERT-IS segir sveitina fylgjast grannt með þróun mála næstu daga. „Markmiðið með þessum bottum er náttúrulega að ýta undir upplýsingaóreiðu og reyna að hafa áhrif á ákveðnar skoðanir og fleira. Og á bak við þessa botta geta verið í rauninni bara einstaklingar eða samtök eða önnur öfl, þannig það er mikilvægt að bregðast við þessu.“ Mikilvægt sé að gera greinarmun á slíkum bottum og öðrum fölsuðum aðgöngum á samfélagsmiðlum. Sveitin hafi ekki merkt stóra bylgju á notkun botta líkt og í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga en sveitin fylgist með stöðunni ásamt greiningardeild ríkislögreglustjóra og Netvís. „Það er kannski líka mikilvægt að gera greinarmun á hvað eru bottar og hvað getur í raun verið bara falskur aðgangur sem er stofnaður af samfélagsmiðlum sem nýtir hann til að skýla sér á bakvið. Bottarnir eru að vinna sjálfvirkt.“ Magni hvetur almenning til þess að skoða samfélagsmiðla þessa dagana með gagnrýna hugsun að vopni. „En við að sjálfsögðu fylgjusmt vel með og eins og ég segi þá hvet ég almenning til að tilkynna í gegnum gátt Netvís og það er einnig mikið af góðum fróðleik inni á heimasíðu Netvís um hvernig má þekkja þessa botta og annað efni í kringum upplýsingaóreiðu.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Netöryggi Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira