Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Bjarki Sigurðsson skrifar 22. ágúst 2026 13:43 Dr. Gunnar Þór Pétursson er deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík. Vísir/Vilhelm/Aðsend Þrír prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík segja frétt Morgunblaðsins um að þeir telji engar undanþágur í boði við aðild vera ranga. Einn prófessoranna segir blaðið leggja sér orð í munn.
Á forsíðu Morgunblaðsins í morgun er haft eftir Ólafi Ragnari Grímssyni, talsmanni samtakanna Áfram Ísland og fyrrverandi forseta Íslands, að utanríkisráðuneytið sé orðið að „áróðursdeild“. Í undirfyrirsögn segir svo „Þrír lagaprófessorar telja engar undanþágur vera í boði“. Þar er verið að vísa til álits sem dr. Gunnar Þór Pétursson, dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson og dr. Margrét Einarsdóttir, prófessorar við lagadeild Háskólans í Reykjavík, gerðu að beiðni forsætisráðuneytisins. Fréttin á forsíðu Morgunblaðsins. Engin dæmi en ekki ómögulegt Gunnar Þór segir í samtali við fréttastofu að í álitinu sé hvergi sagt að engar undanþágur væru í boði. „Það er ekkert sem útilokar að hægt sé að fá bæði varanlegar og tímabundnar undanþágur í aðildarsamningum. Aðildarsamningar eru þjóðréttarsamningar og þetta er þá pólitískt málefni hvað hægt er að ná fram þar. Við bendum líka á það í álitinu að þegar að verið er að meta hvað hafi fengist í fortíðinni, þá þurfum við líka að horfa til þess hvað hafi verið farið fram á. Og ekkert ríki hefur farið fram á undanþágu frá sjávarútvegsstefnunni í heild sinni og þess vegna eru engin slík dæmi,“ segir Gunnar Þór. Leggi þeim orð í munn Á síðu fjögur í blaðinu er haft eftir Heiðrúnu Lind Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, að í álitinu segi prófessorarnir að það sé ekki raunhæft að ætla að við fáum varanlegar undanþágur. „Við gerum ekkert slíkt mat hvort eitthvað sé raunhæft eða óraunhæft, við segjum bara að það hefur engin þjóð farið fram á undanþágu frá stefnunni í heild sinni en tökum hins vegar dæmi um fjölmargar varanlegar og tímabundnar undanþágur sem hafa fengist. Þú getur ekki ályktað frá því að ef enginn hafi farið fram á eitthvað þá sé ekki hægt að ná því í framtíðinni,“ segir Gunnar Þór. Á síðunni hér fyrir neðan má lesa samantekt úr álitsgerðinni sem birt var á vef forsætisráðuneytisins á miðvikudag. Morgunblaðið hafi farið fram úr sér og leggi þeim orð í mun. „Þetta er ósönn framsetning á álitsgerðinni og til þess fallið að afvegaleiða málefnalega umræðu,“ segir Gunnar Þór. Tengd skjöl Álitsgerð_um_forræði_á_náttúruauðlindum_ofl_í_ljósi_reglna_EvrópuréttarPDF1.2MBSækja skjal
Fjölmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Lögmennska Háskólar Sjávarútvegur Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira