Sjá-liðar þekkjast boðið sem Þorgerður afþakkaði Árni Sæberg skrifar 13. ágúst 2026 13:16 Frá vinstri: Hjálmar Vilhjálmsson, Jónas Hagan, Diljá Mist Einarsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson. Haraldur Guðjónsson/Paradigm Jónas Hagan og Hjálmar Vilhjálmsson, stjórnarmenn í samtökunum Sjá, munu mæta þeim Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Diljá Mist Einarsdóttur, þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, í kappræðum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Utanríkisráðherra var boðið að taka þátt í kappræðunum en þekktist ekki boðið.
Vísir hefur sagt frá fyrirhuguðum kappræðum sem Gunnlaugur Jónsson hjá Paradigm hefur verið að skipuleggja en upprunalega hugmyndin var sú að þar myndu þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Guðlaugur Þór mætast og skiptast málefnalega á skoðunum um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Til stóð að kappræður þeirra færu fram á morgun en þá á Þorgerður ekki heimangengt, enda fundar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur á Höfn í Hornafirði á morgun. Gunnlaugur hjá Paradigm ákvað að deyja ekki ráðalaus og leitaði að ræðumanni til þess að fylla í skarð Þorgerðar í kappræðunum. Ekki gekk verr en svo að tveir slíkir ákváðu að taka slaginn. Það eru þeir Jónas Hagan, fjárfestir og atvinnurekandi, og Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóra hjá Brimi, sem eru meðal aðalsprautanna í samtökunum Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segir já í ágúst „til að sjá“. Þar sem þeir verða tveir þótti ekki annað en sanngjarnt að fá samherja fyrir Guðlaug Þór. Ekki var leitað langt yfir skammt heldur var Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs, þegar hann var utanríkisráðherra, fengin til starfans. Gunnlaugur segir í samtali við Vísi að í kappræðunum fái báðar hliðar að halda ræður, veita andsvör og svo spyrja hvor aðra spurninga og svara spurningum úr sal. „Við erum að halda þetta til að ýta undir uppbyggilegar umræður um spurninguna sem er yfirskriftin, Já til að sjá?. Við teljum að hún sé kjarnaspurning í þessari kosningabaráttu.“ Kappræðurnar fara fram klukkan 20 á sunnudaginn í Silfurbergi í Hörpu.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira