Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Árni Sæberg skrifar 5. ágúst 2026 16:20 Margrét Rós gæddi sér á mjólkurglasi í myndskeiðinu. Skjáskot/Vísir Í nýju myndskeiði á Instagram-síðu samtakanna Sjá, sem berjast fyrir því að þjóðin segi já við áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið í ágúst, segir Margrét Rós Sigurjónsdóttir að hún hafi greitt lægri vexti af húsnæðisláni í sænskum krónum, sem væri tengd evru. Sænsk króna er ekki tengd evru. „
Undanfarið erum við búin að ræða alls konar í tengslum við atkvæðagreiðsluna í ágúst og hvort Ísland eigi að ganga í ESB eða ekki eða skoða það og það er búið að ræða hérna matvælaverð og alls konar sem er búið að ræða,“ segir Margrét Rós í upphafi myndskeiðs, áður en klippt er yfir í skot af henni að drekka mjólkurglas. Vísaði í fyrri skyssu Það er vitanlega gamansöm vísun í fyrra myndskeið sem hún birti á sama vettvangi, þar sem hún fór rangt með mjólkurverð á Íslandi og í Svíþjóð. Þá sagði hún mjólkurlítrann á Íslandi kosta 380 krónur. Hið rétta er að í Bónus kostaði hann 234 krónur þegar myndskeiðið var birt. Því var snarlega eytt eftir að fjölmiðlar fjölluðu um það. „Sem er tengd evru“ Í nýja myndskeiðinu segir Margrét Rós að henni finnist mikilvægt að í umræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst sé staldrað við og það rætt hvaða áhrif aðild að ESB myndi hafa á fjölskyldur á Íslandi. Myndskeiðið má sjá í spilaranum hér að neðan: „Þar er auðvitað stærst húsnæðislánin, held ég. Ég hef búið í Svíþjóð, átt íbúð þar og verið með húsnæðislán í öðrum gjaldmiðli, sænskri krónu, sem er tengd evru og ég borgaði svo miklu lægri vexti þar,“ segir hún. Vandinn er sá að sænska krónan er fljótandi gjaldmiðill rétt eins og sú íslenska og hefur verið það frá árinu 1992, þegar hún hafði verið tengd evru í rúmt ár. Upplifði meiri afgang í Svíþjóð Margrét Rós segir að lægri vextir af láninu í Svíþjóð hafi þýtt að hún ætti meiri afgang um hver mánaðamót. „Eða maður getur valið að vinna minna eða valið sér störf meira út frá því sem gefur manni ánægju en ekki bara eftir launaseðlinum og þetta er eitthvað sem mér finnst að við á Íslandi eigum skilið að fá líka. Og til þess að geta gert það þá þurfum við að segja já til að sjá í ágúst, semja og kjósa aftur og ef að við erum á því að samningurinn sé nógu góður þá segjum við já við honum og þá fáum við sama vaxtaumhverfi og önnur Norðurlönd og það held ég að hljóti að vera endamarkmið.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira