Innlent

Á sjúkra­hús eftir að hafa flogið af mótor­hjólinu

Eiður Þór Árnason skrifar
Fréttin er úr safni. 
Fréttin er úr safni.  Vilhelm Gunnarsson

Mótorhjólaslys átti sér stað í Kópavogi seint í kvöld og var ökumaður fluttur slasaður á bráðamóttöku með sjúkrabíl eftir að hafa flogið af hjólinu. Hann var með meðvitund en atvikið átti sér stað á veginum við Kópavogslæk í átt að Reykjavík.

Þetta segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu. Tilkynning hafi borist um slysið rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld. Hann hafði ekki upplýsingar um það hvað nákvæmlega átti sér stað en segir að ekki hafi verið um að ræða árekstur við bifreið eða annað mótorhjól.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×