Erlent

Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Stuðningsmenn Húta komu saman í Jemen í nótt til að mótmæla stjórn landsins sem studd er af Sádí Arabíu.
Stuðningsmenn Húta komu saman í Jemen í nótt til að mótmæla stjórn landsins sem studd er af Sádí Arabíu. AP Photo/Osamah Abdulrahman

Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran í nótt, þá tíundu í röð síðan vopnahlé landanna tveggja fór út um þúfur. Íranir gerðu síðan árás á olíuskip á Hormússundi í morgun og skemmdu það þannig að áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið.

Í morgun bárust einnig þær fregnir að Hútar í Jemen ætli nú að setja siglingabann á öll skip Sádí Arabíu sem hyggjast fara um Bab al-Mandeb sund í Rauða hafinu. Um sundið fara um tólf prósent af öllum skipaflutningum heimsins og segjast Hútar með þessu vera að svara Sádum og illri meðferð þeirra á íbúum Jemen síðastliðinn áratug.

Sádar hafa þegar svarað og segjast ætla að verja sín skip af öllum mætti í samræmi við alþjóðalög.


Tengdar fréttir

Skoða að auka umfang árása enn frekar

Bandaríkjamenn eru að fjölga herþotum og eldsneytisflugvélum í Mið-Austurlöndum og er til skoðunar að auka umfang árása gegn Írönum enn frekar. Í sama tíma boða bæði Bandaríkjamenn og Íranir að frekari viðræður komi enn til greina.

Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans

Tveir bandarískir hermenn eru látnir og sá þriðji er týndur eftir eldflaugaárás Írans í Jórdaníu í gær, föstudag. Fjórir hermenn til viðbótar voru fluttir til nánari aðhlynningar á sjúkrahúsi en hafa þegar verið útskrifaðir. Alls hafa sextán hermenn Bandaríkjanna nú látist í átökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×