Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Sigurgeir Þorkelsson skrifar 15. júlí 2026 15:53 Heiður Anna Helgadóttir er framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta. Samsett FS, Félagsstofnun stúdenta, hefur sent skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar erindi um uppbyggingu 144 stúdentaíbúða á Kársnesi. Um er að ræða einstaklingsíbúðir sem að meðaltali verða tuttugu og níu fermetrar að stærð. Í samtali við Heiði Önnu Helgadóttur framkvæmdastjóra FS kemur fram að stöðug vöntun sé á stúdentaíbúðum.
Um er að ræða svokallaðan reit 4 á Kársnesi, staðsettan við brúna Öldu sem liggja mun yfir Fossvoginn. Samkvæmt skipulagi á að byggja upp íbúðarhúsnæði á reitnum sem miðar sérstaklega að hópum sem líklegir eru til að nýta sér gott aðgengi að almenningssamgöngum á svæðinu. Fyrir liggur að Alda mun ekki vera opin fyrir almennri bílaumferð heldur aðeins almenningssamgöngum, hjólreiðafólki og gangandi vegfarendum. „Við vildum kanna hvort þetta væri raunhæft verkefni fyrir okkur að halda áfram með,“ segir Heiður, en skissur frá Andrúm arkitektum af því hvernig uppbyggingin gæti litið út fylgdu með fyrirspurninni. Fyrir liggja skissur af því hvernig stúdentagarðarnir gætu litið út. Andrúm „Við erum sífellt að leita að nýjum lóðum og þetta er mjög góð staðsetning. Þetta útvíkkar örlítið svæðið hjá okkur en nýjar lóðir hér á háskólasvæðinu eru af skornum skammti,“ segir Heiður og bætir við að aðgengi að háskólasvæðinu muni verða mjög gott með tilkomu brúarinnar. Miðað er við að FS, sem þjónustar nemendur við Háskóla Íslands, geti veitt fimmtán prósentum nemenda skólans leiguhúsnæði. Í dag stendur það nærri tólf prósentum og rúmlega átta hundruð eru á biðlista. Uppbygging samræmist bíllausum lífsstíl Samkvæmt skipulagi munu stúdentaíbúðirnar ekki bæta við bílaumferð á Kársnesi. Reiturinn er sérstaklega hugsaður fyrir þau sem kjósa bíllausan lífsstíl og ekki er gert ráð fyrir að bílastæði fylgi íbúðunum. „Okkar stefna hefur verið að stúdentagarðar séu staðsettir þannig að íbúar geti ferðast til og frá skólanum með sjálfbærum hætti,“ segir Heiður. Verkefnið samræmist á þann hátt vel gildum FS. FS þarfnast um fjögur hundruð og fimmtíu nýrra íbúðaeininga til að ná upp í fimmtán prósentin sem stefnt er að. Tillagan myndi því ná að mæta um þriðjungi þeirrar þarfar ef af verður. Samkvæmt Heiði eru stúdíóíbúðir sem ætlaðar eru til einstaklingsbúsetu vinsælastar meðal háskólanema. Erindi FS hefur verið vísað til verkefnastjóra á umhverfissviði Kópavogsbæjar til umsagnar.
Húsnæðismál Leigumarkaður Háskólar Skipulagsmál Fasteignamarkaður Kópavogur Tengdar fréttir Hækka leigu stúdenta Leigugrunnur íbúða og herbergja á Stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta mun hækka um 5,25 prósent frá og með 1. september næstkomandi. 20. maí 2026 11:00 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Fleiri fréttir Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Sjá meira
Hækka leigu stúdenta Leigugrunnur íbúða og herbergja á Stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta mun hækka um 5,25 prósent frá og með 1. september næstkomandi. 20. maí 2026 11:00