Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar 13. júlí 2026 20:01 Í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni um helgina sagði Inga Sæland menntamálaráðherra að í fjárlögum væri gert ráð fyrir 600 milljóna króna viðbótarfjármagni til útgáfu námsgagna. Hún lagði jafnframt áherslu á að ekki þyrfti alltaf að finna upp hjólið og nefndi að með gervigreind mætti þýða „flottustu námsgögnin erlendis frá“. Að hennar sögn gæti gervigreind skilað þýðingu sem væri um 95% rétt og eftir það þyrfti nánast aðeins að prófarkalesa efnið. Það er fagnaðarefni að stjórnvöld ætli að auka fjármagn til útgáfu námsgagna. Skortur á vönduðu og fjölbreyttu námsefni hefur lengi verið vandamál í íslensku skólakerfi. Gervigreind getur einnig flýtt fyrir þýðingarvinnu, einföldun texta, skipulagningu og ýmiss konar tæknilegri vinnu. Hér þarf þó að gæta þess að rugla ekki saman þýðingu og námsgagnagerð. Vandað námsefni verður ekki til með því einu að finna erlenda bók, þýða textann og prófarkalesa. Þótt þýðingin væri málfræðilega nánast fullkomin væri enn eftir stærsti og mikilvægasti hluti vinnunnar. Námsefni þarf að móta með hliðsjón af nemendahópi, námsstigi og markmiðum námsins. Velja þarf efnið af kostgæfni, ákveða hverju megi sleppa og í hvaða röð eigi að kynna lykilatriði, kenningar og hugtök. Jafnframt þarf að setja efnið fram þannig að nemendur geti tengt það við eigin reynslu og samfélagið í kringum sig. Þar skiptir kennslureynsla miklu máli. Kennari sem hefur kennt sama efnið árum saman sér hvaða atriði þarfnast frekari skýringa, hvaða hugtök reynast nemendum erfið og hvaða dæmi vekja áhuga. Hann sér einnig hvaða framsetning virkar í kennslustofunni og hvenær textinn verður of þungur, fræðilegur eða fjarlægur reynsluheimi nemenda. Þessi faglega þekking verður ekki til með því einu að þýða texta. Ég þekki það af eigin raun, enda hef ég um árabil unnið að þróun og útgáfu námsefnis, allt frá almennum inngangsbókum til einfaldari útgáfa og sérhæfðara efnis. Sú vinna byggist ekki aðeins á því að skrifa texta. Hún byggist á víðtækri kennslureynslu, þekkingu á rannsóknum, skilningi á samfélagsbreytingum og þróun innan félagsvísinda, bæði hér á landi og erlendis. Stærsti hluti vinnunnar felst í að greina, móta og aðlaga innihaldið, velja sjónarhorn og finna framsetningu sem virkar fyrir nemendur. Textar eru yfirfarnir af mikilli nákvæmni og endurskrifaðir, oft setningu fyrir setningu. Hugtök eru tengd reynsluheimi nemenda, kenningar settar í samhengi og dæmi valin með hliðsjón af íslenskum veruleika. Jafnframt þarf að rýna og uppfæra heimildir og laga framsetninguna að ólíkum nemendahópum. Einnig þarf að huga að hugtakalæsi. Nemendur þurfa ekki aðeins að geta lesið textann heldur einnig að skilja fræðileg hugtök, greina þau í raunverulegum aðstæðum og beita þeim í ólíku samhengi. Til þess þarf skýra og markvissa uppbyggingu, viðeigandi dæmi, verkefni, endurtekningu og tengingu milli kafla. Nemendavæn uppsetning verður heldur ekki til af sjálfu sér. Fyrirsagnir, myndir, textalengd, skilgreiningar, dæmi, verkefni og sjónræn framsetning þurfa að vinna saman. Markmiðið er ekki aðeins að miðla upplýsingum heldur að hjálpa nemandanum að læra. Þótt gervigreind hafi flýtt fyrir ýmsum verkþáttum tekur þróun vandaðrar bókar enn mörg hundruð klukkustundir. Hún kemur heldur ekki í stað þeirrar faglegu hugsunar, rýni og reynslu sem góð námsefnisgerð krefst. Erlent efni getur vissulega verið mikilvæg uppspretta og við þurfum ekki alltaf að finna upp hjólið. En efnið þarf að staðfæra. Rannsóknir, lög, stofnanir, menning og reynsla nemenda eru ólík eftir löndum. Dæmi sem virka vel í bandarískri eða breskri kennslubók geta verið fjarlæg íslenskum nemendum eða jafnvel villandi í íslensku samhengi. Gott námsefni byggist því ekki aðeins á fagþekkingu, rannsóknum og rýni heldur einnig á innsæi og sköpunargáfu höfundarins. Hann þarf að finna leiðir til að vekja áhuga, gera flókið efni aðgengilegt og tengja það reynsluheimi nemenda. Þegar gervigreind er notuð þarf færni til að stýra samspili manns og vélar, meta niðurstöðurnar og þróa þær áfram. Gæðin ráðast að verulegu leyti af þekkingu, dómgreind og vinnubrögðum höfundarins. Gervigreind á að vera verkfæri í þessari vinnu, ekki staðgengill fagþekkingar. Aukið fjármagn má vissulega nýta til að þýða og staðfæra vandað erlent efni, en slík vinna krefst mun sterkari faglegs ramma en orð ráðherrans gefa til kynna. Þýðing með gervigreind og prófarkalestur duga ekki ein og sér. Tryggja þarf faglega ritstjórn, kennslufræðilega úrvinnslu, rýni heimilda, staðfæringu og prófun með hliðsjón af íslenskum nemendum, skólastarfi og samfélagi. Jafnframt þarf að styðja íslenska námsgagnahöfunda sem hafa byggt upp reynslu af þróun og útgáfu námsefnis og skapa nýjum höfundum skýran farveg með ráðgjöf, ritstjórn og stuðningi við útgáfu. Að þýða texta getur verið byrjun. En það er ekki það sama og að búa til námsefni. Höfundur er kennari og stofnandi stafbok.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bogi Ragnarsson Skóla- og menntamál Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun