Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. júlí 2026 10:53 Aurore hefur verið búsett á Íslandi í sjö ár og á verslunina Sweet Aurore Reykjavík. Gunnar Freyr Gunnarsson Brotist var inn í sælkerabakaríið Sweet Aurora Reykjavík í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og peningum stolið. Eigandinn er miður sín en afar þakklátur fyrir stuðning samfélagsins sem stendur með henni. Hún stefnir ótrauð á að halda fjögurra ára afmælisveislu verslunarinnar. „
Ég mætti í vinnuna í gærmorgun og kom að skrifstofunni í bakaríinu í rústi og var allt brotið á gólfinu. Peningaskápurinn var galopinn og allur peningurinn farinn,“ segir Aurore Pélier Cady, eigandi Sweet Aurora Reykjavík sem selur franskt bakkelsi. Aurore hringdi í lögregluna um leið sem kom og hóf rannsókn. Eftirlitsmyndavélin í andyrri verslunarinnar hafði ekki náð góðri mynd af þjófnum en sjálf fann hún far eftir hendi þjófsins. Verslunin er á gatnamótum Bergstaðastrætis og Spítalastígs.Kevin Pages „Það var 150 þúsund krónum stolið, sem er mjög mikið fyrir svona lítið fyrirtæki,“ segir Aurore en hún ætlaði að nota peninginn til að greiða fyrir fjögurra ára afmælisveislu fyrirtækisins næsta föstudag. Vegna fjárhagserfiðleika opnaði Aurore samt sem áður verslunina í gærmorgun og varaði fylgjendur sína við því að hún myndi ef til vill ekki vera með bros á vör. „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt, þetta er svo erfiður bransi að ég gat ekki haft lokað í gær. Ég er venjulega með lokað á mánudögum svo ég fæ frí í dag. Sýningin verður að halda áfram, ég get ekki tapað meira.“ Hvetur fólk til að styðja „kaupmanninn á horninu“ Bjartmar birti mynd af sér við verslunina og hvetur fólk til að styðja „kaupmanninn á horninu“.Facebook Innbrotið hefur vakið athygli á Facebook en Bjartmar Leósson, sem er þekktur sem hjólahvíslarinn, birti færslu þar sem hann hvetur fólk til að kíkja við í bakaríinu. „Við þurfum að standa með kaupmanninum á horninu, svona staðir gera borgina okkar betri,“ skrifar hann í færslunni sem yfir þúsund manns hafa líkað við. Aurore segist hrærð yfir viðbrögðunum. „Maðurinn hafði samband við mig, kom eftir að ég lokaði og spurði hvort það væri í lagi ef hann myndi birta færsluna. Hann var svo almennilegur. Ég er búin að vera svo þakklát fyrir allan stuðninginn,“ segir hún. „Þetta hljómar kannski kjánalega en sem innflytjandi vermir það hjartaræturnar þegar samfélagið kemur svona saman. Ég var ekki að búast við þessu í fullri hreinskilni.“ Þetta er í sjöunda skipti sem Aurore verður fyrir innbroti.Eyrún Lydia Hún vilji sjálf ekki óska eftir fjárhagsaðstoð en vinkona hennar hafi krafist þess að stofna GoFundMe-síðu þar sem fólk ytra vildi styðja við verslunina. Þá stendur enn til að halda fjögurra ára afmælisveisluna á föstudag. Aurore tekur fram að öllum sé boðið á milli fimm og átta í verslunina sem er við Bergstaðastræti í miðbæ Reykjavíkur. Sjöunda innbrotið Hægt er að festa kaup á alvöru frönsku bakkelsi í versluninni.Kevin Pages Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Aurore verður fyrir slíku en á þeim fjórum árum sem hún bjó á Laugavegi var sex sinnum brotist inn til hennar. „Í flestum tilfellum var það fólk sem var að neyta fíkniefna. Ég náði að stoppa þau í nær öll skiptin og hringja í lögregluna eða hræða þau á brott með skóflu,“ segir hún. Að endingu hafi hún flutt sig um set og hefur ekki lent í innbroti á nýja heimilinu. Samt sem áður telur hún að á þeim sjö árum sem hún hefur verið búsett á Íslandi hafi innbrotum farið fjölgandi og ekki einungis í miðborginni.
Reykjavík Veitingastaðir Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Fleiri fréttir Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Sjá meira