Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2026 23:30 Það fór vel á með þeim Jürgen Klopp og Kylian Mbappé eftir sigur Frakka á Marokkó í átta liða úrslitum HM þar sem franski framherjinn var bæði með mark og stoðsendingu. Getty/Michael Regan Kylian Mbappé er sjóðandi heitur á heimsmeistaramótinu í fótbolta og er á góðri leið með að spila sinn þriðja úrslitaleik HM á ferlinum og vinna sinn annan Gullskó á HM. Hann spilar með Real Madrid en um tíma dreymdi Liverpool um að fá hann til sín.
Jürgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóri Liverpool, sagði í viðtali við MagentaTV að hann hefði lagt allt í sölurnar til að fá Kylian Mbappé árið 2017. Það ár vann Mónakó frönsku deildina og unglingurinn Mbappé var farinn að láta til sín taka á stóra sviðinu. Frakkinn vakti mikla athygli Klopps. Fyrir 8-liða úrslit Frakklands og Marokkó á HM það ár sagði Klopp frá því að sendinefnd frá Liverpool hefði ferðast til Nice í einkaflugi til að hitta Mbappé og fjölskyldu hans. „Við flugum frá Blackpool til Nice. Þegar við komum til Nice komu Mbappé og fjölskylda hans um borð. Einkaþotan var með fimm herbergi eða eitthvað slíkt,“ segir þýski þjálfarinn við MagentaTV, þar sem hann er sérfræðingur um HM. „Við lögðum sannarlega allt í sölurnar. Við flugum í hringi, ræddum við hann og fjölskyldu hans og borðuðum dýrindis máltíð. Þar sem við máttum ekki sjást flugum við í hringi,“ útskýrir Klopp. Sumarið 2017 endaði þó með því að Mbappé fór frá Mónakó til erkifjendanna í Paris Saint-Germain í risastórum félagaskiptum. Mbappé var í höfuðborg Frakklands í sjö tímabil áður en hann fór til Real Madrid sumarið 2024.
HM 2026 í fótbolta Liverpool FC Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira