Enski boltinn

Eiður fann til með Liverpool

Sindri Sverrisson skrifar
Alexis Mac Allister fékk dauðafæri í fyrri hálfleik og gerði tilkall til að fá vítaspyrnu eins og fleiri leikmenn Liverpool.
Alexis Mac Allister fékk dauðafæri í fyrri hálfleik og gerði tilkall til að fá vítaspyrnu eins og fleiri leikmenn Liverpool. Getty

Eiður Smári Guðjohnsen sagði Liverpool vel hafa getað fengið vítaspyrnu í fyrri hálfleik gegn Arsenal í dag. Þeir Hjörvar Hafliðason fóru yfir málin í hálfleik í beinni útsendingu frá Anfield.

Arsenal var 1-0 yfir eftir fyrri hálfleikinn með marki frá Kai Havertz.

„Einhver smá misskilningur á milli Alisson og Jacquet sem hugsanlega hefði átt að lesa sendinguna fyrr. Liverpool kom sér í vandræði þannig og þetta var í raun það eina sem Arsenal uppskar þannig séð,“ sagði Eiður.

„Annars hefur þetta bara verið Liverpool að pressa á Arsenal,“ bætti hann við.

Það komu upp nokkur atvik í fyrri hálfleiknum þar sem Liverpool-menn heimtuðu vítaspyrnu:

„Ég get alveg fundið til með Liverpool að fá ekki alla vega hálft víti. Stærsta atriðið var þegar Isak er við það að fara í boltann en það er togað í hann. Mér fannst bara Isak ekki gera nógu mikið úr því til að setja pressu á dómarann. Svo eru 2-3 önnur atriði sem eru hálfvegis víti,“ sagði Eiður.

Hjörvar benti á að sóknir Liverpool færu iðulega fram vinstri kantinn og liðið var afar nálægt því að jafna metin.

„Það er ekkert skrýtið að Liverpool sé að fara upp vinstra megin þegar Araujo og Gakpo eru hinu megin, ekki jafnmikill sóknarþungi með Araujo. En það verður að segjast að Mac Allister hafi fengið dauðafæri til að jafna,“ sagði Eiður sem kvaðst ekki búast við breytingum hjá þjálfurunum fyrr en að líða tæki á seinni hálfleik.

„Sem stendur hugsa ég að Iraola sé ágætlega sáttur miðað við spilamennsku og þrýstinginn sem þeir eru að setja á Arsenal. Svo getur hann kannski tekið áhættu þegar líður á leikinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×