Fótbolti

Fabregas hafði betur gegn Þóri

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þórir Jóhann Helgason spilaði 78 mínútur í dag.
Þórir Jóhann Helgason spilaði 78 mínútur í dag. Getty/ Maurizio Lagana

Como vann 1-0 sigur á Venezia í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag. Þórir Jóhann Helgason byrjaði í liði Feneyinga.

Þórir Jóhann spilaði 78 mínútur í leik dagsins áður en honum var skipt af velli fyrir Albion Rrahmani.

Vítaspyrnumark Frakkans Lucas Da Cunha á 43. mínútu fyrir lærisveina Cesc Fabregas í Como var munurinn á liðunum.

Como er eftir sigurinn í fjórða sæti með 23 stig eftir tíu leiki, tveimur stigum frá toppliðum Inter og Lazio. Lazio á leik inni.

Venezia er á botni deildarinnar, 20. sæti, með aðeins þrjú stig en er þó aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×