Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Óljósar fréttir hafa borist af því að þjálfari Marokkó, Walid Regragui, hafi sagt af sér aðeins fjórum mánuðum áður en liðið hefur keppni á HM í fótbolta. Fótbolti 6.2.2026 16:02
Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump Stjórnarmaður í þýska knattspyrnusambandinu segir að kominn sé tími til að íhuga sniðgöngu á heimsmeistaramótinu í fótbolta vegna aðgerða Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Fótbolti 24.1.2026 08:32
Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Svokallaður brandari Gianni Infantino, forseta FIFA, um hegðun breskra stuðningsmanna á heimsmeistaramótinu í Katar 2022 var „hvorki hjálplegur né réttur,“ segir yfirmaður fótboltalöggæslu í Bretlandi sem gegnrýnir skot forsetans. Fótbolti 23.1.2026 23:02
Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Enski boltinn 16.1.2026 12:03
Segir að Brasilía þurfi á Neymar að halda Nýjasti liðsfélagi Neymar hjá Santos hefur sterkar skoðanir á því hvort Brasilíumenn eigi að taka Neymar með á heimsmeistaramótið í sumar Fótbolti 12. janúar 2026 17:30
TikTok í fyrsta sæti á HM í fótbolta í sumar Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur valið TikTok sem aðalvettvang sinn fyrir myndefni á samfélagsmiðlum á heimsmeistaramóti karla í fótbolta næsta sumar en knattspyrnusambandið gaf þetta út í gær. Fótbolti 9. janúar 2026 14:02
Norðmenn bjartsýnir á að Haaland færi þeim HM-titil Þó að Noregur sé í níunda sæti hjá veðbönkum yfir líklegustu liðin til að vinna HM karla í fótbolta í næsta sumar þá er norska þjóðin ansi bjartsýn á að Erling Haaland og félagar verði heimsmeistarar. Fótbolti 6. janúar 2026 17:03
Skotar fá frídag vegna HM Til að fagna því að vera komnir á heimsmeistaramótið í fótbolta í fyrsta sinn í tæp þrjátíu ár fá Skotar auka frídag. Fótbolti 6. janúar 2026 10:30
Áfall fyrir Heimi Hallgríms og drauminn um að komast á HM Írska fótboltalandsliðið hefur orðið fyrir verulegu áfalli þrátt fyrir að það séu rúmir tveir mánuðir í næsta leik. Fótbolti 1. janúar 2026 13:30
Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar gekkst undir skurðaðgerð í enn eitt skipti og lofar að verða í góðu standi þegar heimsmeistaramótið hefst næsta sumar. Fótbolti 23. desember 2025 12:02
Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Eins og jafnan á stórmótum í fótbolta verða sérstök stuðningsmannasvæði, oft nefnd Fan Zone, á HM næsta sumar. Ávallt hefur verið ókeypis inn á þessi svæði en það gildir ekki að þessu sinni. Fótbolti 18. desember 2025 23:15
KSÍ missti af meira en milljarði króna Knattspyrnusamband Íslands varð af mjög stórum fjárhæðum þegar íslenska karlalandsliðinu í fótbolta mistókst að tryggja sér sæti á HM karla í fótbolta í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Fótbolti 17. desember 2025 15:13
Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Nígeríumenn vonast til að endurvekja vonir sínar um að komast á HM karla í fótbolta 2026 með kvörtun til FIFA vegna ólöglegra leikmanna Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó í umspilsleik þeirra í síðasta mánuði. Fótbolti 17. desember 2025 12:01
Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur lækkað verð á sumum miðum á heimsmeistaramótið í fótbolta næsta sumar en það á við fyrir tryggustu stuðningsmenn liðanna eftir hörð viðbrögð um allan heim. Sumir munu fá sæti á úrslitaleikinn á sextíu dollara í stað þess að þurfa að greiða 4.185 dollara. Fótbolti 17. desember 2025 09:00
Gestgjafar HM bjóða Íslandi heim í leik Mexíkó, einn þriggja gestgjafa næsta heimsmeistaramóts karla í fótbolta, mun mæta Íslandi í vináttulandsleik í febrúar næstkomandi. Fótbolti 16. desember 2025 15:03
Launað ríkulega fyrir að koma Norðmönnum á HM Ståle Solbakken landsliðsþjálfari Norðmanna mun ekki kveðja á HM næsta sumar því nú er ljóst að hann heldur áfram sem þjálfari Noregs. Fótbolti 12. desember 2025 14:02
Saka FIFA um okurverð á miðum á HM næsta sumar Óhætt er að segja að miðaverð á leiki á heimsmeistaramótið í fótbolta næsta sumar sé komið út fyrir öll velsæmismörk. FIFA hefur verið hvatt til að stöðva miðasölu á HM eftir að í ljós kom að dyggustu stuðningsmenn þjóða stæðu frammi fyrir „okurverði“ á miðum, þar sem ódýrustu miðarnir á úrslitaleikinn kosta yfir þrjúsund pund eða 510 þúsund krónur. Fótbolti 12. desember 2025 09:02
Gætu breytt áfengislögunum sínum vegna HM næsta sumar Norðmenn eru komnir inn á heimsmeistaramót karla í fótbolta í fyrsta sinn í næstum því þrjá áratugi og það er óhætt að segja að það sé spenna hjá norsku þjóðinni. Fótbolti 11. desember 2025 07:30
Saka forseta FIFA um ítrekuð brot og fara fram á rannsókn Formleg kvörtun hefur verið send til siðanefndar Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) og þar fullyrt að forseti sambandsins, Gianni Infantino, hafi ítrekað brotið á hlutleysisskyldu sinni þegar kemur að stjórnmálum. Er þess enn fremur krafist að rannsókn fari fram á ferlinu sem leiddi til þess að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hlaut fyrstu friðarverðlaun FIFA. Fótbolti 9. desember 2025 18:36
Brassar að gera sömu mistökin og áður með að fá ekki leik við Ísland Brasilíumenn hafa bara orðið heimsmeistarar í fótbolta ef þeir annaðhvort eru með Pele í liðinu eða spila vináttulandsleik við Ísland í aðdraganda heimsmeistarakeppninnar. Þeir virðast ekki vera enn búnir að átta sig á þessu. Fótbolti 9. desember 2025 09:00
Vatnspása í öllum hálfleikjum á HM í fótbolta næsta sumar Leikirnir á HM í fótbolta í sumar munu vera lengri en áður eftir að Alþjóðaknattspyrnusambandið tilkynnti um að hver leikur muni fá vatnspásur í hvorum hálfleik. Fótbolti 9. desember 2025 06:33
Banna samkynhneigð en mætast samt í „Hinsegin leiknum“ á HM 2026 Skipulagsnefndin í Seattle, einni af gestgjafaborgum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu næsta sumar, hefur sagt að leikurinn á Lumen Field-leikvanginum í borginni þann 26. júní muni fela í sér hátíðarhöld til heiðurs LGBTQ+-samfélaginu. Fótbolti 8. desember 2025 16:03
Þrettán mismunandi leiktímar á HM næsta sumar Heimsmeistaramótið í fótbolta fer fram í þremur löndum og í mörgum tímabilum næsta sumar. Það hefur mikil áhrif á tímasetningar leikja sem sést vel á leikjadagskránni sem var gefin út um helgina. Fótbolti 8. desember 2025 15:03
Heimir bjartsýnn eftir HM-drátt: „Þetta er riðill sem við getum unnið“ Heimir Hallgrímsson er staðráðinn í að stýra Írum inn á HM í fótbolta, í fyrsta sinn frá árinu 2002, og nú er ljóst hvaða lið bíða Írlands í riðlakeppninni komist liðið inn á mótið. Fótbolti 6. desember 2025 10:45
Messi og Ronaldo gætu mæst í átta liða úrslitunum á HM 2026 Argentínumenn og Portúgalar voru frekar heppnir með riðil þegar dregið var í riðla á HM í gær. Fótbolti 6. desember 2025 06:32