Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Árni Sæberg skrifar 10. júlí 2026 10:57 Refillinn var fluttur í hita- og rakastýrðum kassa. Kwiyeon Ha/AP Bayeux-refillinn, eitt af mestu stórvirkjum listasögunnar, var fluttur frá Frakklandi til Englands í nótt í háleynilegri aðgerð. Refillinn hefur ekki yfirgefið Frakkland í tæplega þúsund ár, eða frá því að hann var fluttur þangað frá Englandi, þar sem hann er talinn hafa verið saumaður út af enskum nunnum.
Bayeux-refillinn er sjötíu metra langt og um fimmtíu sentimetra breitt refilsaumað klæði, sem sýnir orrustuna við Hastings 14. október 1066. Normenn undir stjórn Vilhjálms sigursæla réðust inn í England og unnu þar bug á Engilsöxum undir stjórn Haralds Guðinasonar. Uppruni refilisins er vinsælt þrætuepli meðal sagnfræðinga en flestir telja í dag að hann hafa verið saumaður af nunnum í Englandi eftir pöntun frá franska bisknum Odo af Bayeux. Framkvæmdir á heimili refilsins Emmanuel Macron Frakklandsforseti bauð Bretum að fá refilinn að láni í fyrra á meðan safnið sem hann hangir vanalega til sýnis, í Bayeux, undirgengst framkvæmdir. Áður hefur komið til tals að refillinn yrði fluttur til Bretlands, til að mynda árið 2018. Loks var látið verða af því í nótt, þegar refillinn var fluttur frá Bayeux til Breska safnsins í Lundúnum. Þar verður hann til sýnis næstu 18 mánuði. Óhætt er að segja að spenna ríki fyrir sýningunni enda seldust 100 þúsund miðar á sýninguna strax fyrsta daginn sem þeir fóru í sölu, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins. Tryggður fyrir vænan skilding Flutningurinn var ekki einföld aðferð enda er refillinn mjög viðkvæmur og ómetanlegur. Honum var komið fyrir í hita- og rakastýrðum kassa, sem var svo komið fyrir í dempuðu álbúri. Þá var tímasetningu flutningsins haldið leyndri og tvær æfingaferðir voru farnar. Þrátt fyrir vel undirbúinn og varfærinn flutning, og þá staðreynd að refillinn verður ekki metinn til fjár, ákvað ríkisstjórn Bretlands að tryggja hann fyrir 800 milljónir punda, eða sem nemur um 138 milljörðum króna.
Frakkland Bretland Menning Myndlist Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira