Útilokað að hundur sem týndist fyrir 38 árum sé sá sami og fannst við Langjökul Freyja Þórisdóttir skrifar 6. júlí 2026 16:43 Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Á henni má sjá sleðahunda í Chugach-fjöllunum í Alaska-fylki í Bandaríkjunum. Getty Eigandi hunds sem fannst dauður við Langjökul á dögunum er enn ófundinn. Fjölmargir hafa þegar sett sig í samband við sjálfboðaliðasamtökin Dýrfinnu. Meðal þess sem þeim hefur borist var ábending um hund sem týndist fyrir tæpum fjörutíu árum. Hann var ekki með eins litaða ól og sá sem fannst og er því útilokað að um sama hund sé að ræða.
Þetta kom fram í samtali Eyglóar Önnu Ottesen við blaðamann Vísis en hún er ein þeirra sem eru í Dýrfinnu-teyminu en sjálfboðaliðasamtökin voru stofnuð árið 2022. Samtökin aðstoða við leit að týndum dýrum en auglýst var eftir eiganda hundsins í færslu á Facebook-síðu þeirra fyrir helgi. „Við erum í rauninni bara að bíða eftir því að við fáum réttu lýsinguna á ólinni,“ segir hún og bætir við að það hafi margir sett sig í samband við þau en að elsta tilkynningin um týndan hund sem þeim var bent á hafi verið þrjátíu og átta ára gömul. Í Facebook-færslunni sagði að líkaminn væri það langt kominn í niðurbrotsferlinu að hvorki væri hægt að segja til um tegund né lit á feldi með vissu en að áætlað væri að hundurinn væri af meðalstærð. „Þetta er ekki á svona fjölförnum stað en það var einhver sem rambaði á þetta,“ segir Eygló og bætir við að þau geti með engu móti áætlað hvenær hundurinn fór undan ísnum. Þau hjá Dýrfinnu hafa þegar athugað með sleðahundafyrirtæki sem heldur úti ferðum þarna á svæðinu yfir veturinn en hundurinn er ekki frá því. Þau hafa líka náð tali af íbúum nærliggjandi bæja og eru engu nær. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Dýr Hundar Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Fleiri fréttir Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Útilokað að hundur sem týndist fyrir 38 árum sé sá sami og fannst við Langjökul Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“