Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Freyja Þórisdóttir skrifar 6. júlí 2026 11:56 Hugleikur segir tuftvélina vera meðal þess sem hefur enn ekki skilað sér eftir þjófnaðinn en að það væri örþrifaráð að siga Bubba á þjófana. Getty/Vísir/Vilhelm Um helmingur þýfisins sem var stolið af vinnustofu Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt laugardagsins, 4. júlí, hefur ratað aftur heim en aðeins annar þjófurinn hefur verið handsamaður. Hugleikur Dagsson, grínisti og eiginmaður Karenar, rifjaði það upp í viðtali á Vísi að Bubbi Morthens hafi aðstoðað sig við að endurheimta harðan disk fyrir um áratug síðan en hann hefur ekki enn verið ræstur út þessa ferðina.
Hugleikur, sem vakti athygli á þjófnaðinum í færslu á samfélagsmiðlum um helgina, segir blaðamanni frá því að ýmsar ábendingar hafi borist frá fólki á samfélagsmiðlum og hefur lögreglan haldið þeim upplýstum um gang mála. „Það voru mjög margir að senda, margir könnuðust við kauða,“ segir hann en lögreglan hafði uppi á öðrum þjófnum í gær, sunnudaginn 5. júlí, og svo virðist sem þýfinu hafi verið skipt í helminga svona um það bil. Þjófurinn sem hafðist upp á var meðal annars með annan harða disk Antons af tveimur sem innihélt fjöldann allan af listaverkum hans. Væri örþrifaráð að ræsa Bubba út Í viðtali við blaðamann Vísis um helgina lýsti Hugleikur því hvernig þjófarnir vörðu um þremur klukkustundum á vinnustofunni og ferjuðu síðan út fullt af dóti, svo sem tuftbyssu Karenar, sem sé vinnutól sem erfitt sé að verða sér úti um og fáist líklega ekkert svo mikið fyrir. Hugleikur sagði einnig frá því í viðtalinu hvernig skilaboð Bubba til undirheimanna hafi orðið til þess að hörðum disk sem var stolið af þeim fyrrnefnda var skilað fyrir um tíu árum. „Ég lenti sjálfur í því fyrir svona tíu árum að það var brotist inn til mín og stolið tölvum og græjum og myndavélum. Ég sendi út skilaboð hvar sem ég gat gert það. Það endaði með því að Bubbi Morthens var á Rás 2 og sagði: Nú tala ég til undirheima, skiliði harða disknum hans Hugleiks. Þannig að þeir skiluðu allavega harða disknum mínum,“ sagði hann. Hugleikur segist þó ekki sjá fram á að þurfa að ræsa hann út í þetta skipti enda sé málið komið inn á borð lögreglu og hann bjartsýnn á að það takist að hafa uppi á hinum þjófnum. Það væri örþrifaráð að fá Bubba til liðs við sig á ný. Hæpið að fólk í undirheimum pæli í tuftvélum „Það væri náttúrulega frábært þó að þetta allt kæmi til baka en þetta var svo mikið af alls konar dóti, það var í rauninni fylltur poki og töskur af dóti,“ segir hann og bætir við: „Það var gerður listi yfir allt sem var stolið en það er meira að segja erfitt að segja hverju var stolið, vegna þess að það er svo mikið af dóti.“ Hugleikur birti þessa færslu á Instagram um helgina.skjáskot Tuftvélin er eitt af því fjölmarga sem hefur enn ekki komið í leitirnar en Karen var blessunarlega nýbúin að ljúka við uppsetningu á nýjustu sýningu sinni. „Það er allavega þessi tuftbyssa hún er svo ofboðslegur „spesifískur“ munur að ég er að efast um að það sé einhver í undirheimum að pæla í svoleiðis vélum.“ Hann segir hvorki Anton né Karen hafa kært þjófana en að málið sé samt enn í ferli. Nú sé bara að krossa fingur og vona að restin af þýfinu skili sér, Bubbi þurfi þá ekki að fara að setja sig í stellingar eina ferðina enn.
Tónlist Reykjavík Samfélagsmiðlar Lögreglumál Handverk Tengdar fréttir Brotist inn hjá Hugleiki Brotist var inn hjá Hugleiki Dagssyni, listamanni, í gærkvöldi og voru tvær tölvur hafðar á brott ásamt hljómgræjum og flakkara. 12. júní 2011 14:38 Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki hafi verið boðið lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Sjá meira
Brotist inn hjá Hugleiki Brotist var inn hjá Hugleiki Dagssyni, listamanni, í gærkvöldi og voru tvær tölvur hafðar á brott ásamt hljómgræjum og flakkara. 12. júní 2011 14:38