Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar 1. júlí 2026 09:33 Þegar ÁTVR lokaði Vínbúðinni á Fáskrúðsfirði yfirgaf ríkið byggðina. Skýringin var einföld: reksturinn bæri sig ekki. Þjónusta sem átti að vera svo lífsnauðsynleg að enginn annar mætti sinna henni var lögð niður um leið og hún hætti að borga sig. Fáeinum vikum síðar hafði einkafyrirtækið Santé opnað áfengisafgreiðslu í kjörbúð bæjarins. Þjónustan var komin aftur og um leið hafði rekstrargrundvöllur matvöruverslunarinnar styrkst. Það sem ríkið treysti sér ekki til að gera, leysti einkaaðili á svipstundu. Það er fagnaðarefni. En það vekur spurningar. Ef ríkið telur sig ekki geta haldið þjónustunni úti, hvers vegna á það þá áfram að hafa einkarétt á henni? Þar liggur þversögnin. Ríkisvaldið rökstyður einokunina með því að hún sé nauðsynleg til að stýra aðgengi og verja lýðheilsu. Samt yfirgefur sami einokunaraðili lítið samfélag um leið og reksturinn hættir að borga sig og lætur einkaaðila um að tryggja það sem átti að vera of mikilvægt til að fela nokkrum öðrum. Markmiðið reynist þá ekki vera að tryggja þjónustu, heldur að halda í fyrirkomulag sem stenst tímans tönn æ verr. Löggjöfin um einkasölu ríkisins er barn síns tíma. Hún varð til þegar markaðir voru lokaðir, samgöngur stirðar og netverslun óþekkt. Í dag panta Íslendingar áfengi frá erlendum vefverslunum og fá það sent heim, kaupa það á veitingastöðum og í brugghúsum. Aðgengi ræðst ekki lengur af því hvort ríkið reki búð á tilteknum stað. Þá er erfitt að halda því fram að einokunin sjálf sé forsenda lýðheilsu. Viðskiptaráð hefur réttilega bent á þversögnina sem í þessu felst: erlendir aðilar njóta í sumum tilvikum rýmri heimilda en innlend fyrirtæki. Ráðið hefur líka sýnt fram á að ríkið geti tryggt öll lýðheilsusjónarmið - leyfisskyldu, eftirlit, aldurstakmörk og áfengisgjöld án þess að reka sjálft smásöluverslanir. Íslenskt samfélag hefur fyrir löngu lagt flestar aðrar ríkiseinokanir af. Ríkið rekur hvorki bakarí, bensínstöðvar, símkerfi né banka í krafti einokunar. Ástæðan er einföld: samkeppni skilar jafnan betri þjónustu, meiri sveigjanleika og meiri hagkvæmni en opinber einokun. Áfengissala á ekki að vera undantekningin. Þetta snýst ekki um að aflétta reglum eða gera áfengi að hverri annarri neysluvöru. Það snýst um að viðurkenna hið augljósa: ríkið þarf ekki að standa sjálft á bak við búðarborðið til að tryggja ábyrga sölu. Það getur sett skýr skilyrði, veitt starfsleyfi, haft virkt eftirlit og beitt viðurlögum þegar brotið er gegn lögum. Nákvæmlega þannig höfum við kosið að haga sölu á fjölmörgum öðrum vörum sem lúta regluverki. Fáskrúðsfjörður er þannig orðinn táknmynd stærra máls. Þar sem ríkið gafst upp, steig einkaaðili inn. Íbúarnir fengu þjónustuna aftur og verslun bæjarins styrktist. Erfitt er að hugsa sér betri rök fyrir því að tími ríkiseinokunar á áfengissölu sé einfaldlega liðinn. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð og bindindismaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Sigurðsson Fjarðabyggð Áfengi Verslun Byggðamál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar