Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 9. júní 2026 18:56 Sigríður Pétursdóttir hefur búið við Hringbraut í 44 ár. Vísir/Lýður Valberg Íbúi við Hringbraut í Reykjavík hefur ekki lengur tölu á alvarlegum slysum sem hún hefur séð við götuna og segir Hringbraut í núverandi mynd vera líkt og rússnesk rúlletta. Hún segir aðeins eitt til ráða við akstri óábyrgra ökumanna.
Tilefnið er færsla föðurs í íbúahópi vesturbæjar Reykjavíkur á Facebook þar sem hann lýsir því hvernig hann átti leið yfir Hringbraut með dóttur sinni á grænu ljósi sem varð rautt í þann mund sem þau gengu yfir götuna og keyrði þá bíll í veg fyrir þau. Á myndum sem hann sendi fréttastofu má sjá hvernig bílum er ítrekað ekið yfir gatnamót á götunni á rauðu ljósi. Sigríður Pétursdóttir hefur búið við gangbraut á Hringbraut í 44 ár, síðan árið 1981. Hér má sjá eina af mörgum myndum sem faðirinn hefur tekið þar sem farið er yfir á rauðu ljósi.Aðsend „Ég varð vitni að hræðilegum slysum hérna. Fleiri en einu og fleiri en tveimur. Það var til dæmis 2007 þar sem fólk slasaðist, þetta var á horni Hringbrautar og Birkimels við gönguljósin og svo aftur banaslys 2009. Mér var farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama, þetta var svo alvarlegt og við vorum búin að berjast fyrir því að það yrði gert eitthvað.“ Ekki tölu á fjölda barna sem hún hefur kippt upp á gangstétt Baráttan hafi skilað sér í lækkun hámarkshraða á Hringbrautinni niður í 40 kílómetra hraða sem Sigríður segir heillaskref en vandinn sé að hámarkshraðinn sé ekki virtur og að fólk hlýti ekki rauðu ljósi. „Og ég hef ekki tölu á þeim fjölda barna sem ég hef kippt upp á gangstétt af því þau treysta ljósunum, þau trúa ekki að bílarnir séu að fara að spana yfir á rauðu. Og það gætu verið svo miklu miklu fleiri hræðileg slys. Þetta er eins og rússnesk rúlletta, á hverjum degi.“ Aftanákeyrslur séu einnig tíðar og segir hún ökumenn gefa sér drápsauga þegar hún ekur bíl sínum á löglegum hraða á götunni. „Það er í raun ekkert sem virkar á Íslendinga nema eitthvað sem kemur við pyngjuna, þannig að hraðamyndavélar væru það eina sem myndu virka við þessi gönguljós, ég er alveg sannfærð um það. Okkur hefur verið sagt já hraðamyndavélar þær eru dýrar en ég er algjörlega sannfærð um að þær myndu borga sig upp á örskömmum tíma.“
Umferð Umferðaröryggi Reykjavík Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Setja lög á verkfall flugvirkja Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Sjá meira