Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar 5. júní 2026 12:31 Ef foreldri hefur áhyggjur af því hvernig komið er fram við barnið þess í skóla og vill kvarta, þá vaknar einföld spurning. Hvert á að leita? Svarið ætti að vera einfalt en er það ekki. Það fer eftir því við hvern talað er og svörin stangast á. Óljóst hvert á að leita Vandinn byrjar oft strax hjá sveitarfélaginu. Foreldrið fær ekki skýr svör um hvert á að leita eða hver réttindi þess eru. Stundum fær það eitt svar hjá einum starfsmanni og annað hjá þeim næsta, eins og um persónulega skoðun sé að ræða frekar en skýrar reglur. Sveitarfélögum ber þó skylda til að leiðbeina fólki og sú skylda er ekki háð því hver svarar. Þegar leiðbeiningarnar eru misvísandi byrjar foreldrið ferðina þegar á rangri leið. Barnið verður að pakki sem enginn vill kvitta fyrir Tvö opinber bréf sýna hvernig kerfið vinnur gegn börnum, viljandi eða óviljandi. Í fyrra bréfinu segir mennta- og menningarmálaráðuneytið foreldri að það geti ekki skipt sér af einstökum málum sveitarfélaga, aðeins sé tekið við formlegum kærum í afmörkuðum tilvikum. Foreldrinu er bent á umboðsmann Alþingis. Í seinna bréfinu segir umboðsmaður Alþingis nánast hið gagnstæða. Ráðherra hafi einmitt vald til að hafa eftirlit með skólum sveitarfélaga og geti gripið inn í. Þess vegna eigi foreldrið að leita fyrst til ráðherra. Ráðuneytið segir: talið við umboðsmann. Umboðsmaður segir: talið við ráðuneytið. Foreldrið er sent fram og til baka eins og pakki sem enginn vill kvitta fyrir. Á meðan líður tíminn Þetta er ekki bara þreytandi. Á meðan málið gengur fram og til baka líður tíminn. Kærufrestur er oft aðeins þrír mánuðir. Meðferð hjá umboðsmanni getur tekið marga mánuði og það að leita til hans stöðvar ekki frestinn. Foreldri getur því gert nákvæmlega það sem því var ráðlagt og samt komist að því að fresturinn er löngu runninn út. Þá fæst engin úrlausn, ekki af því málið hafi verið rangt heldur af því tíminn rann út á meðan enginn vildi taka ábyrgð. Þetta er kjarninn. Hringekjan getur svipt börn og foreldra réttinum til að fá mál sín leyst. Sá réttur er ekki aukaatriði heldur sjálfsögð krafa í réttarríki. Sama valdið, ólík niðurstaða Það undarlega er að báðar stofnanir vísa í sama valdið hjá ráðherra. Önnur notar það til að ýta málinu frá sér, hin til að senda það til baka. Ráðherra hefur raunverulegt eftirlitsvald með sveitarfélögum og það er ekki háð því að til sé sérstök kæruleið. Þegar ráðuneyti segir samt að það geti ekkert gert er það hugsanlega að gefa fólki rangar upplýsingar um réttindi þess. Skyldan til að leiðbeina rétt er ekki valkvæð. Niðurstöður stjórnvalda eru ekki birtar Foreldrar geta hvergi flett upp hvernig sambærileg mál hafa verið leyst. Dómar og álit umboðsmanns eru birt en niðurstöður langflestra kvartana hjá sveitarfélögum og ráðuneytum eru hvergi sýnilegar. Það þýðir tvennt. Foreldri veit ekki fyrir fram hver réttur þess er og kerfið lærir seint og illa, ef það lærir. Sömu mistök endurtaka sig því ár eftir ár. Væru niðurstöður aðgengilegar, án persónugreinanlegra upplýsinga, gætu stjórnvöld lært og foreldrar þekkt rétt sinn áður en í óefni er komið. Í málinu sem umboðsmaður skoðaði í vetur var barnið farið úr skólanum þegar yfir lauk. Á pappírnum var allt í lagi en aðalspurningin, hvort barnið hafi sætt mismunun, fékkst aldrei skoðuð. Kerfið gætti eigin reglna en barnið sat eftir án svara. Þetta þekkja margir. Foreldrar sem fá ekki svör, kennarar sem vita ekki hver ber ábyrgðina og sveitarstjórnarfólk sem fær mál í fangið án þess að vita hver eigi að leysa það. Vandinn er ekki endilega vondur vilji heldur að enginn telur sig bera lokaábyrgðina. Átján ár án ramma Þetta er ekki nýtt. Lög um grunnskóla voru sett árið 2008. Á átján árum hefur stjórnvöldum ekki tekist að búa til skýran ramma um réttindi barna og foreldra sem á þeim byggja. Þetta er ekki vandamál sem þarf meiri tíma til að leysa. Það hefur fengið nægan tíma og fær samt ekki úrlausn. Hvað þarf að laga Fernt þarf að laga: Sveitarfélög og ráðuneyti sinni leiðbeiningarskyldu sinni og gefi samræmd svör sem byggja á reglum, ekki skoðunum starfsmanna. Ráðuneyti kannist við eftirlitsvald sitt og beiti því í stað þess að vísa málum frá. Frestir renni ekki út á meðan fólk bíður svara. Þetta skiptir kannski mestu. Niðurstöður kvartana verði aðgengilegar svo kerfið læri og foreldrar þekki rétt sinn. Að öðrum kosti halda fleiri foreldrar áfram að vera sendir fram og til baka, með börnin sín í farteskinu, þangað til dyrnar lokast af sjálfu sér. Höfundur er fjögurra barna faðir og viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Umboðsmaður Alþingis Lúðvík Júlíusson Mest lesið Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers eiga fatlaðir og foreldrar þeirra að gjalda? Margrét Össurardóttir skrifar Skoðun Alvöru eða sérhæfðir kennarar Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar Skoðun Getum við plís lagt niður Fjölmiðlanefnd Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Gulur september – styðjum hvert annað Soffía Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hatur í garð gyðinga Árni Már Jensson skrifar Skoðun Samtal getur bjargað lífi Alma D. Möller skrifar Skoðun Erum við Íslendingar hópheimskir? Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun 200 milljarðar – og við getum gert betur Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög – en á kostnað hverra? Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Leiðin út úr PISA-lægðinni Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæfan sem við tökum ekki eftir Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Opið bréf til Landssamtaka lífeyrissjóða Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ef börnin eru ekki vandamálið, hvað er þá að? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar
Skoðun Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar
Sniðgöngum öll Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir Skoðun