Skoðun

Skóli án að­greiningar má missa sín

Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar

Undanfarnar vikur hafa birst óþægilegar fréttir af öryggi barna og starfsmanna í skólum. Nýjustu PISA-niðurstöður sýna að aðeins 56% íslenskra ungmenna ná grunnhæfni í lesskilningi við lok grunnskóla. Í Kveik í gær var síðan fjallað um börn með fjölþættan vanda sem hafa verið vistuð í rándýrum einkareknum búsetuúrræðum með lítilli betrun.

Þessi mál eiga sameiginlegan þráð og eru birtingarmynd kerfis sem hefur of lengi ruglað saman jöfnuði og einsleitni.

Hugsjónin um skóla án aðgreiningar er falleg: Að ekkert barn sé útilokað og öll börn tilheyri samfélaginu. En í framkvæmd hefur hún allt of oft orðið að þröngsýnni kennisetningu um að öll börn eigi að vera í sama rými, í sama kerfi og sömu aðstæðum, óháð þörfum þeirra.

Barn sem ræður illa við stórt og hávaðasamt skólaumhverfi er ekki endilega hluti af hópnum þótt það sitji inni í almennri kennslustofu. Barn með alvarlegan tilfinninga-, hegðunar- eða geðrænan vanda fær ekki hjálp við hæfi með því einu að vera látið dvelja innan um þrjátíu önnur börn. Og bekkjarfélagar þess eiga líka rétt á öryggi, kennslu og athygli. Barn sem er með annan bakgrunn, annað móðurmál og aðra menningu nær ekki að aðlagast íslenskum veruleika og læra íslensku á því að sitja í smekkfullri skólastofu og fylgja hópnum.

Ofbeldishegðun, vanlíðan og síendurtekin áföll eru merki um að barn þurfi raunverulega og sérhæfða aðstoð.

Skortur á litlum námsúrræðum, sérhæfðum skólum, meðferðarúrræðum og faglegri eftirfylgd hefur afleiðingar. Barnið sem þarf mestan stuðning fær hann ekki. Önnur börn missa kennslutíma og upplifa óöryggi. Kennarar og annað starfsfólk brenna út. Foreldrar þurfa að berjast árum saman. Að lokum greiðir samfélagið fyrir rándýr neyðar- og búsetuúrræði þegar vandinn er orðinn miklu stærri.

Sérúrræði eru ekki það sama og útilokun. Rétt úrræði, á réttum tíma og með fagfólki, getur sparað okkur mikinn tíma, fjármagn og bjargað mannslífum.

Niðurstöður PISA. Umfjöllun Kveiks. Ofbeldi í skólum. Allt þetta vil ég tengja við það hvernig stefnan um skóla án aðgreiningar var framkvæmd á landsvísu. Amma Arnars Atla hafði einmitt orð á því í Kveik á RÚV í gær

„Þegar við flytjum upp í Hamrahverfið var ég svo ánægð því það var einhverfudeild þar og ég hugsaði að nú fengi hann þá hjálp sem hann þyrfti. En þá var akkúrat einhverfudeildin lögð niður og skóli án aðgreiningar settur í gang, sem er það fáránlegasta sem hefur verið gert, held ég.“

Ég er sammála. Þetta er það fáránlegasta sem hefur verið gert. Stefnan um skóla án aðgreiningar má missa sín. Hún er að mínu mati orsök þess að mörg börn ná ekki að fóta sig í skólakerfinu með slæmum afleiðingum.

Ég legg til að við leggjum þessa stefnu niður. Mætum börnum með viðeigandi úrræðum. Fjölgum móttökudeildum, sérstökum úrræðum, sérskólum, einhverfudeildum og námsleiðum fyrir börn með afburða námsgetu. Þá fyrst förum við að sjá börn blómstra.

Höfundur er  borgarfulltrúi Miðflokksins.




Skoðun

Sjá meira


×