Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar 28. október 2026 08:30 Hryllingshross sem munu halda fyrir þér vöku á hrekkjavökunni Samkvæmt gamla norræna tímatalinu skiptist árið í tvö misseri, sumar og vetur. Sumarið endaði við lok sláturtíðar en þá tók vetur við með gormánuði. Skilin þarna á milli kölluðust veturnætur. Þær nætur bar upp í lok október samkvæmt okkar tímatali, á sama tíma og keltneska hausthátíðin Samhain sem síðar varð að Halloween eða hrekkjavöku. Við þessi árstíðaskil blótuðu heiðnir menn dísir með fórnum, áti og drykkjuveislum sem vörðu dögum saman. Dísirnar skyldu halda hlífiskyldi yfir fólkinu og vernda það fyrir forynjum og illum vættum sem hófu innreið sína með vetrarmyrkrinu. Talið er að mönnum og dýrum hafi verið fórnað í helga lundi og mýrar, allt fram til ársins þúsund, til friðunar illra vætta sem sættu lagi að hremma menn í vetrarmyrkrinu. Um veturnætur horfðu menn til himins og sæjust þar rauð ský eða rauðleit norðurljós boðaði það ófrið, styrjaldir og dauða. Rauð ský á myrkum himni um veturnætur boða ekkert gott. Dreymdi fólk svarta hesta, þarna undir lok sláturtíðar, var það óheilla og ósættistákn en bleikir, gráir eða leirljósir hestar boðuðu veikindi og dauða. Gandreið Óðinn sjálfur reið Sleipni, sínum áttfætta gráa hesti, til móts við endalokin í gini Fenrisúlfs í ragnarökum. Þegar kristnin skapaði óvætti úr gömlu guðunum, á miðöldum, urðu Óðinn, Sleipnir og fylgdarlið þeirra að ófreskjum sem herjað gátu á fólk í stormum og óveðri í vetrarmyrkrinu, sérstaklega á jólanótt. Þetta var ýmist kallað gandreið eða Óðinsreið og óttuðust menn hana mjög. Jón Árnason skrásetti síðar í þjóðsögum sínum hvernig galdramenn og fordæður smíðuðu reiðtygin sem þurfti til að ríða um himininn með hinum ófresku hersveitum Óðins: Hver sem vill geta riðið loft og lög verður að hafa beizli það sem heitir gandreiðarbeizli. Það er svo til búið að maður tekur upp nýgrafinn mann og ristir af honum hrygglengjuna. Hana hefur maður í tauma. Því næst skal flá höfuðleðrið af hinum dauða manni og hafa það í höfuðleður í beizlið. Málbein hins dauða manns skal í mél hafa og mjaðmir í kjálka. Galdur þarf og að lesa hér yfir og er þá beizlið búið. Þarf nú ekki annað en leggja gandreiðarbeizlið við mann eða dýr, stokk eða stein. Fer það þá í loft með þann sem á situr og flýgur fljótar en elding til þess staðar er maður vill. Verður þá þytur mikill í loftinu og þykjast sumir hafa heyrt hann og heyrt glamra í gandreiðarbeizlinu. Fram eftir öldum þóttust menn stundum heyra til Óðins á Sleipni í fylgd herskara drauga, yfir bæjum sínum að vetri. Þá brá við hófadyni, vopnabraki, svipusmellum, bjölluhljómi og ýlfri afturganga. Væru menn á ferð í vetrarmyrkrinu og gengju fram á svartan hest þótti næsta víst að þar væri sjálfur djöfullinn á ferðinni í hestslíki, samneyti við hann boðaði bráðan dauða. Samhain, An Púca og nykur í myrkrinu Keltar til forna trúðu að þegar árstíð myrkurs tæki við af árstíð ljóssins þurrkuðust skilin á milli lífs og liðinna út. Þeir héldu hátíð á þessum árstíðarskilum sem þeir kölluðu Samhain, hátíð ástar og elda. Í haustmyrkrinu trúðu þeir að andar ástvina og illar vættir gengju aftur. Fólk forðaðist hina illu anda með því að klæðast grímum og búningum en setti út lifandi ljós og mat fyrir gengna ástvini. Á þessum árstíma voru líkurnar á að hitta fyrir andann An Púca hvað mestar. Hann birtist oftar en ekki í líki faxmikils gæðings, kolsvartur með glóandi augu. Andinn gat spáð til um framtíðina og gefið góð ráð en vegfarendur áttu alls ekki að stíga á bak honum, þá hlypi hann í gönur og næturlanga þeysireið og fleygði reiðmanninum af baki, jafnvel fyrir björg eða í mýri. Á Íslandi bjuggu sambærilegir hestaandar við vötn og straumhörð fljót. Íslendingar kölluðu þá nykra. Þeir vor stórir hestar, gráir eða móálóttir, faxprúðir og fallegir en þegar betur var að gáð snéru hófar þeirra öfugt. Nykurinn lokkaði vegfarandann á bak, hvar hann sat fastur á meðan hestandinn stökk ofan í vatn og drekkti knapanum. Reiðmenn endalokanna Hugmyndin handanheima hesta og baráttu ljóss og myrkurs, kemur líklega inn í gyðingdóm og kristni frá Zóróaster (Saraþústra) trúarbrögðum Persíu, hvar hugmyndir um eilífa baráttu ljóss og myrkurs voru ríkjandi. Sú hugmynd ratar svo inn í Opinberunarbók Jóhannesar, í nýja testamenti biblíunnar, þar sem fjórir reiðmenn boða endalok mannkyns. Í þeim mikla hildarleik hefur hver hestur sitt hlutverk: Sá fyrsti er hvítur, hann ber með sér landvinninga og alræði, í kjölfar hans kemur rauður hestur en hann stendur fyrir stríð og blóðsúthellingar. Sá þriðji er svartur, hann kemur með hungursneyð og skort, Síðastur er hinn föli eða bleiki hestur dauðans – og helvíti fylgir í slóð hans. Samkvæmt spádómnum leiða reiðmenn endalokanna hina hinstu orrustu við Harmageddon, hvar hið góða og illa berjast upp á líf og dauða og tilgangur heimsins verður lýðum ljós áður en myrkrið gleypir heiminn í hinsta sinn. Allra heilagra messa Í nútímanum renna þessar fornu hefðir saman í það sem við þekkjum helst sem hrekkjavöku eða allra heilagar messu. Við klæðumst enn grímubúningum, þó það sé ekki lengur til að stökkva á brott illum öndum og setjum út ljós í graskeri án þess að hugsa beinlínis til látinna ástvina. Við höldum enn veislur þó þær séu ekki lengur eiginleg Dísablót og ég horfi allavega til himins um veturnætur og vona að ég sjái ekki bregða fyrir rauðum skýjum á myrkum himni. Íslenska skammdegið er dimmt og langt og ekki sjálfgefið að vera á vetur setjandi. Við Vatnskotstúnið hímir bleikur hestur. Ég heilsaði onum kunnuglegur í bragði - það á hann sjálfsagt einhver næturgestur. Hann leit á mig og þekti mig og þagði – -Halldór Laxness Nú þegar veturinn hefur innreið sína með gormánuði og klakaböndum er ekki úr vegi að tendra ljós fyrir forfeðurna og varast forynjur og heljarhesta sem híma í skuggunum. Bleiki hesturinn hans Laxness sækir víst alla að lokum en kannski má fresta þeim fundi enn um sinn með því að fela sig bak við grímu og snúa við honum baki. Augnaráð hans fylgir manni þó úr skuggunum eins og þögul áminning um feigð og forgengileika, handan við plastgrímurnar og hrekkjavökugamanið býr ævagamall ótti við drauga, myrkur og vetur sem aldrei tekur enda. Höfundur er rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hrekkjavaka Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skoðun Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun