SAS fellir niður allt flug til Grænlands Kristján Már Unnarsson skrifar 31. maí 2026 07:37 Frá fyrsta flugi SAS til Nuuk þann 27. júní 2025. Flogið var á 168 sæta Airbus A320. Greenland Airports Skandinavíska flugfélagið SAS hefur óvænt fellt niður alla flugáætlun sína í sumar milli Danmerkur og Grænlands. Félagið segir ástæðurnar vera hærra eldsneytisverð og minni eftirspurn.
SAS hugðist fljúga þrjár ferðir í viku í sumar milli Kaupmannahafnar og Nuuk. Fyrsta flugið var áætlað 28. maí en félagið hafði áður seinkað upphafinu til 3. júlí. Fyrir helgi greindi danski flugfréttamiðilinn Check-in svo frá því að SAS hefði aflýst allri sumaráætlun sinni til Grænlands. Í frétt DR um málið er haft eftir dönskum ferðamálasérfræðingi að þótt hækkun eldsneytisverðs sé án efa meginástæðan gætu rekstrarvandræði flugvallarins í Nuuk, bæði vegna veðurs og öryggismála, einnig hafa spilað inn í ákvörðun SAS. Flugvél SAS á flugbrautinni í Nuuk í fyrsta fluginu þaðan í fyrra.skjáskot/Greenland Aviation Þetta gerist aðeins ellefu mánuðum eftir að SAS hóf Grænlandsflug að nýju eftir tveggja áratuga hlé. Félagið hafði haustið 2024 boðað endurkomu sína í tengslum við opnun nýju flugbrautarinnar í Nuuk, en þó aðeins með flugi yfir sumartímann. Forstjóri SAS sagði félagið þó opið fyrir því að fljúga árið um kring ef næg eftirspurn yrði. Þótt úthald SAS hafi aðeins enst í þrjá mánuði í fyrrasumar virðast ráðamenn félagsins ekki hafa gefið Nuuk-flug endanlega upp á bátinn. Þeir hafa tjáð flugvallafélagi Grænlands að Nuuk sé áfram í þeirra áætlanagerð fyrir sumarið 2027. Flugleið SAS milli Kaupmannahafnar og Nuuk var formlega opnuð í lok júní í fyrra. SAS hafði þá ekki flogið áætlunarflug milli Danmerkur og Grænlands í nærri tvo áratugi.Greenland Airports Air Greenland, þjóðarflugfélag Grænlendinga, hefur brugðist við tíðindunum með því að bæta við ferðum milli Nuuk og Kaupmannahafnar í sumar, eftir því sem Inga Dóra Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Air Greenland, segir í viðtali við Sermitsiaq. Fræðast má um flugmál Grænlendinga í þættinum Flugþjóðin sem sýndur er á Sýn í opinni dagskrá klukkan 17:25 í dag, sunnudag. Hér má sjá átta mínútna kafla: Í þættinum er saga Grænlandsflugs Íslendinga jafnframt rakin. Altalað var að íslenskir flugmenn treystu sér oftar en flugmenn SAS til að fljúga þangað í krefjandi landslagi og misjöfnu veðri: Íslensk flugfélög hafa í nærri sjö áratugi haldið úti reglubundnum flugsamgöngum milli Íslands og Grænlands. Hér má heyra sögubrot:
Grænland Flug Flugþjóðin Danmörk Tengdar fréttir Stórtap Air Greenland vegna aflýstra flugferða til Nuuk Þjóðarflugfélag Grænlendinga, Air Greenland, hefur orðið fyrir stórfelldu fjárhagstjóni vegna metfjölda aflýstra flugferða til nýja flugvallarins í Nuuk. Inga Dóra Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Air Greenland, segir félagið aldrei hafa lent í öðru eins í yfir sextíu ára sögu sinni. 5. október 2025 22:40 Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Icelandair hefur ákveðið að nota Boeing 737 Max-þotur í áætlunarflugi sínu milli Keflavíkur og Nuuk. Þetta er í fyrsta sinn sem farþegaþotur eru notaðar í flugi milli Íslands og höfuðstaðar Grænlands. 9. júní 2025 08:51 Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Skandinavíska flugfélagið SAS hefur tilkynnt um að það hefji áætlunarflug milli Danmerkur og Grænlands á ný eftir tveggja áratuga hlé. SAS hyggst fljúga þrisvar í viku yfir sumartímann milli Kaupmannahafnar og Nuuk og verður fyrsta flugið þann 27. júní næstkomandi. 2. nóvember 2024 15:45 Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Stórtap Air Greenland vegna aflýstra flugferða til Nuuk Þjóðarflugfélag Grænlendinga, Air Greenland, hefur orðið fyrir stórfelldu fjárhagstjóni vegna metfjölda aflýstra flugferða til nýja flugvallarins í Nuuk. Inga Dóra Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Air Greenland, segir félagið aldrei hafa lent í öðru eins í yfir sextíu ára sögu sinni. 5. október 2025 22:40
Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk Icelandair hefur ákveðið að nota Boeing 737 Max-þotur í áætlunarflugi sínu milli Keflavíkur og Nuuk. Þetta er í fyrsta sinn sem farþegaþotur eru notaðar í flugi milli Íslands og höfuðstaðar Grænlands. 9. júní 2025 08:51
Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Skandinavíska flugfélagið SAS hefur tilkynnt um að það hefji áætlunarflug milli Danmerkur og Grænlands á ný eftir tveggja áratuga hlé. SAS hyggst fljúga þrisvar í viku yfir sumartímann milli Kaupmannahafnar og Nuuk og verður fyrsta flugið þann 27. júní næstkomandi. 2. nóvember 2024 15:45