Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar 29. maí 2026 23:17 Umræðan um námsgögn íslenskra skólabarna hefur sjaldan verið jafn hávær. Foreldrar reka upp stór augu þegar börnin koma heim með áratugagamlar kennslubækur og ný skýrsla Þróunarsjóðs námsgagna staðfestir að kerfið er alvarlega fjársvelt. Gögnin sýna að aðeins um 0,4% af rekstrarkostnaði grunnskóla fara í námsgögn hér á landi, á meðan hlutfallið er margfalt hærra annars staðar á Norðurlöndunum. En þessi mikilvæga umræða er því miður aðeins hálfnuð. Nær öll athyglin hefur beinst að grunnskólunum, á meðan framhaldsskólarnir gleymast að mestu. Gjaldhlið og markaðsbrestur Á framhaldsskólastigi er staðan raunar mun verri og það er engin tilviljun. Ólíkt grunnskólanemendum þurfa nemendur í framhaldsskólum enn að greiða fyrir allt námsefni sjálfir. Frumvarp til að breyta því hefur dagað uppi á Alþingi tvö ár í röð og var ekki einu sinni lagt fram á yfirstandandi þingi. Ofan á það bætist að áfangakerfið, þar sem hver skóli ræður sinni eigin námskrá, veldur því að sami áfangi er sjaldnast kenndur eins á milli skóla. Markhópur hverrar bókar verður þar með agnarsmár og á litlu málsvæði er útkoman sú að nánast enginn getur réttlætt útgáfu á nýju efni á hreinum markaðsforsendum. Staðan birtist með ólíkum hætti eftir greinum. Í iðn- og verknámi hefur hugsjónafólk og sérhæfðir útgefendur á borð við Iðnú, oft með stuðningi Þróunarsjóðs námsgagna, unnið þrekvirki við að halda íslensku námsefni á lofti. En til að geta fjármagnað nýrri og vandaðri rafbækur hefur útgáfan þurft að færast yfir í áskriftarform þar sem nemendur greiða mörg þúsund krónur á önn fyrir tímabundinn aðgang, en eignast aldrei bækurnar. Þetta er ekki sök útgefenda heldur skiljanleg viðbrögð á örmarkaði. Því miður gerir þetta námið sífellt dýrara. Í mörgum raungreinum er staðan að mörgu leyti enn þyngri. Þar eru íslenskar kennslubækur ýmist orðnar áratuga gamlar eða einfaldlega ekki til og kennarar grípa því æ oftar til bóka á ensku eða púsla saman eigin efni. Nemandi sem á erfitt með að ná tökum á rafefnafræði þarf þá ekki bara að glíma við sjálft efnið heldur líka tungumálið. Það er einmitt þessi veruleiki sem fékk mig til að safna liði til að þýða og staðfæra opna kennslubók í efnafræði fyrir framhaldsskóla. Verkefni sem hefur tvisvar verið synjað um styrk úr Þróunarsjóði námsgagna vegna fjárskorts. Þegar markaðurinn bregst og efnið er ekki til, stíga kennarar inn. Heil 70% kennara segjast nota námsefni sem þeir útbúa sjálfir „oft eða mjög oft” samkvæmt könnun Menntamálastofnunar. Þetta er efni sem kennarar skrifa af hugsjón á kvöldin og um helgar, án þess að fá fyrir það greitt. Þessi ólaunaða vinna er ósýnileg niðurgreiðsla sem heldur menntakerfinu á floti. Fagleg námsefnisgerð er hins vegar sérhæft starf. Hún krefst aðkomu kennslufræðinga, ritstjóra og hönnuða. Þegar kerfið veltir þessari byrði yfir á herðar kennara ofan á allt annað, er einfaldlega verið að krefjast hins ómögulega. Alþjóðleg gæði, íslensk staðfærsla Við leysum þennan vanda ekki með því að dæla meira opinberu fjármagni í lokuð afnotaleyfi eða gamaldags leigukerfi, þar sem ríkið eða nemendur borga fyrir dýran aðgang á hverju ári án þess að eignast neitt. Við leysum hann heldur ekki með því að láta kennara halda áfram að finna upp hjólið hvern í sínu horni. Lausnin liggur í opnu námsefni (e. Open Educational Resources, OER). Í stað þess að skrifa nýjar kennslubækur frá grunni ætti hið opinbera að styðja við staðfærslu á hágæða, ritrýndu efni sem þegar hefur verið þróað erlendis af stórum teymum sérfræðinga. Við vinnu okkar við að staðfæra efnafræðibók frá hinni virtu alþjóðlegu námsgagnaveitu OpenStax nýtum við íslenska máltækni til að vinna þýðingargrunninn hratt og örugglega. Hlutverk kennarans breytist við það. Í stað þess að vera bókaútgefandi felst sérfræðivinnan í því að tryggja rétta hugtakanotkun og málfar og sníða efnið að íslensku umhverfi. Þannig getum við tengt efnafræðina við íslenskan iðnað, álframleiðslu og jarðvarmavirkjanir sem nemendur þekkja úr eigin umhverfi. Með því að þýða efni sem gefið er út með opnu leyfi er okkur þetta heimilt, en sambærileg vinna er miklum takmörkunum háð þegar um er að ræða bækur með hefðbundnum höfundarrétti. Með því að gefa íslensku þýðinguna svo út með opnu leyfi (Creative Commons) verður hún sameign samfélagsins til frjálsra afnota. Nemendur fá ókeypis aðgang frá fyrsta degi og kennarar fá aftur sitt kennslufræðilega fullveldi, þ.e. frelsi til að breyta, bæta og aðlaga kafla að sínum áföngum án þess að brjóta höfundarrétt. Almannafé á að skapa almannagæði Í umræðunni síðustu daga hefur verið kallað eftir því að ríkið hætti námsefnisgerð og láti markaðinn taka við. Sú lausn er bara önnur hlið á sama peningnum. Efnið verður áfram læst inni, bara hjá einkaaðilum í stað ríkisins og skattfé heldur áfram að renna í áskriftir og leyfisgjöld ár eftir ár án þess að nokkuð byggist upp í eigu samfélagsins. Opið námsefni er önnur leið sem hafnar þessari tvíhyggju. Hún snýst um að almannafé framleiði almannagæði sem verða varanleg sameign, ekki tímabundinn leiguréttur, hvort sem leigusalinn er ríkið eða einkaaðili. Hér þurfa stjórnvöld að setja skýra og gagnsæja leikreglu: námsefni sem kostað er að stærstum hluta af almannafé á að vera gefið út með opnu leyfi. Það er óásættanlegt að skattfé sé notað til að fjármagna lokaðar afurðir sem skólar eða nemendur þurfa svo að kaupa eða leigja aftur og aftur, ár eftir ár. Ef stjórnvöldum er alvara með því að fylgja eftir eigin Menntastefnu til 2030 verðum við að hætta að treysta á ólaunaða yfirvinnu kennara. Fjárfestum í opnum innviðum sem tryggja nemendum faglega ritrýnt efni á eigin tungumáli, draga úr mismunun á grundvelli búsetu eða efnahags og leyfa kennurum að einbeita sér að því sem þeir gera best: að kenna. Höfundur er framhaldsskólakennari og leiðir þróunarverkefni um þýðingu og staðfærslu á opnu námsefni í efnafræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Framhaldsskólar Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun