Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Árni Sæberg skrifar 27. maí 2026 11:09 Oddvitarnir og borgarfulltrúar kynna samstarfið fyrir utan Viðeyjarstofuna. Vísir/Vilhelm Samkvæmt samstarfssáttmála Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar ætla flokkarnir að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík.
Í yfirliti yfir samstarfssáttmálann segir að mikilvægt sé að ráðast í róttækar breytingar á stjórnskipulagi og rekstri borgarinnar, nýta tíma og fjármuni betur með það að markmiði að bæta þjónustu. Samstarfsflokkarnir ætli að hlusta á ólíkar raddir borgarbúa, ávinna sér traust og vinna að sátt um framtíð Reykjavíkur. Mæti þörfum en breyti þeim ekki Reykjavik eigi að veita framúrskarandi þjónustu og setja hagsmuni íbúa í fyrsta sæti. Þess vegna setji flokkarnir málefni fjölskyldunnar í forgang. Þeir blási til stórsóknar í skólamálum, hyggist innleiða fjölbreyttar lausnir í leikskóla- og daggæslumálum og vilji auka aðgengi barna að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Huga þurfi vel að eldra fólki og tryggja því áhyggjulaust ævikvöld í Reykjavik. Borgarfulltrúar meirihlutans, varaborgarfulltrúar og fjölmiðlamenn ganga til fundar oddvita flokkanna þriggja í Viðey.Vísir/Vilhelm Flokkarnir ætli að fjárfesta í innviðum hverfanna, stórauka húsnæðisuppbyggingu og koma fólki hraðar á milli staða. Þeir vilji tryggja samkeppnishæfni borgarinnar með því að styðja við atvinnulíf, menningu og skapandi greinar. Reykjavík eigi að vera lifandi og skemmtileg, frjálslynd en ekki stjórnlynd og leggja áherslu á að að mæta þörfum en ekki breyta þeim. Lykiláherslur sáttmálans eru eftirfarandi: „Við ætlum að auglýsa eftir vinnustöðum til samstarfs um rekstur leikskóla eða daggæslu. Við ætlum að setja okkur mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi og stefna að skólakerfi í fremstu röð. Við ætlum að hefja samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjármögnun hans og framkvæmdahraða. Við ætlum að endurskoða fyrirhugað deiliskipulag við Suðurlandsbraut í samstarfi við hagaðila. Við ætlum að endurskoða breytingar á gatnamótum við Hólabakka. Við ætlum að stytta gjaldskyldutima á bílastæðum í miðborginni í samvinnu við íbúa og fyrirtæki. Við ætlum að breyta fyrirliggjandi skipulagi nýrra hverfa i Keldnalandi og Úlfarsárdal og hefja skipulag nýrra framtíðarhverfa á Kjalarnesi, Geldingamesi, Gufunesi og Granda. Við ætlum að lengja opnunartima sundlauga til klukkan 22. Við ætlum að ráðast í hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu með það að markmiði að auka skilvirkni og draga úr sóun. Við ætlum að bjóða út sorphirðu í einu hverfi borgarinnar í tilraunaskyni svo undirbúa megi rekstrarútboð á allri sorphirðu borgarinnar. Við ætlum að kortleggja aðstöðumál ipróttafélaga og fjárframlög til þeirra svo forgangsraða megi verkefnum og tryggja jafnræði milli félaga. Við ætlum að efla stoðþjónustu við börn inni í skólum borgarinnar. Við ætlum að tryggja að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Við ætlum að bjóða tekjulágu eldra fólki 60.000 króna árlegan frístundastyrk Við ætlum að lækka fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Við ætlum að standa vörð um og efla græn svæði borgarinnar og ráðast í skógræktarátak.“ Loks segir að ítarlegri verkefnalisti verði gerður aðgengilegur á vefsíðunni verkefnalisti.is þegar nýr meirihluti tekur formlega við störfum 2. júní næstkomandi.
Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Reykjavík Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Fleiri fréttir Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Sjá meira